Hér er opið á sumardaginn fyrsta

22. apríl 2024

Við tökum fagnandi á móti sumrinu fimmtudaginn 25. apríl.  Boðið verður upp á andlitsmálingu, blöðrudýr, kandífloss og sumargjöf frá Smáralind. Opið verður á milli 12 og 17.

Það er farið að glitta í fallegar vor- og sumarvörur í verslunum Smáralindar sem eru opnar á milli 12 og 17 á sumardaginn fyrsta. Annar opnunartími verður í Smárabíói, World Class, Fótboltalandi og á sumum veitingastöðum.

Dagskrá á sumardaginn fyrsta kl. 13-16

Blöðrulistamenn gefa blöðrufígúrur
Staðsetning: 1. hæð fyrir framan Pennann Eymundsson

Andlitsmálning
Staðsetning: 1. hæð fyrir framan Zara

Kandífloss
Staðsetning: 1. hæð á móti Karakter

Fígúrur frá Sirkus Íslands gefa sumargjöf frá Smáralind á meðan birgðir endast.
Staðsetning: 1. hæð fyrir framan Zara

Síminn býður upp á andlitsmálningu og gefa ís og krítar á meðan birgðir endast
Staðsetning: Síminn, 1. hæð milli kl. 14-16

Í tilefni sumardagsins fyrsta bjóða margar verslanir sumarleg tilboð þessa dagana. Kynntu þér tilboðin!

 


Gleðilegt sumar