Þjónusta í Smáralind

Þjónustuborð Smáralindar er opið á afgreiðslutíma Smáralindar og er staðsett á 2. hæð á milli Zöru og Vila. Þar er hægt að fá upplýsingar um allt sem við kemur Smáralind en einnig er eftirfarandi þjónusta í boði:

  • Hjólastólalán
    Gott aðgengi er í Smáralind fyrir hjólastóla. Ef þú vilt fá lánaðan hjólastól þá er hægt að panta hjólastól með því að hafa samband við þjónustuborðið. Þú mátt að sjálfsögðu koma með þinn eigin.
  • Barnakerrur að láni
    Á þjónustuborðinu er hægt að fá lánaða barnakerru endurgjaldslaust. Kerrurnar henta börnum sem eru allt að 15 kg á þyngd. Kvitta þarf fyrir láninu á þjónustuborðinu og skila svo kerrunni þangað eftir notkun.
  • Tapað og fundið
    Á þjónustuborðinu er haldið utan um muni sem finnast í Smáralind og skila verslanir slíkum hlutum á þjónustuborðið. Óskilamunir eru geymdir í tvær vikur frá því þeir berast á þjónustuborðið.
  • Strætómiðar og strætóleiðir
    Auðvelt er að ferðast með strætó til og frá Smáralind með strætisvagnaleiðum 2, 24 og 28 og fást strætómiðar á þjónustuborðinu. Á vef Strætó finnur þú bestu leiðina fyrir þig.

Hægt er að hafa samband við þjónustuborðið í síma 528 8000 eða með því að senda tölvupóst á thjonusta@smaralind.is