Viltu stílísera framtíðina með okkur?
Leitum að tískugúrú með fullkomið vald á samfélagsmiðlum. Stílisti Smáralindar er nýtt framtíðarstarf fyrir snilling sem getur verið allt í öllu í nýrri nálgun okkar á netinu.
Ef þú elskar tísku, hönnun og góðan mat - og að miðla þessu öllu á skemmtilegan hátt í máli og myndum þá er þetta spennandi tækifæri fyrir þig.
Þetta þarftu að gera
- Búa til efni og koma með hugmyndir
- Skrifa texta, taka myndir og og stílísera fatnað, mat og húsmuni
- Sjá um samfélagsmiðlana. Móta stefnuna og plana framtíðina
- Eiga frábær samskipti við viðskiptavini, kaupmenn og samstarfsfólk
- Leysa alls konar verkefni sem detta inn á borðið okkar.
Þetta þarftu að vera
- Trendsetter með brennandi áhuga á tísku og hönnun
- Snillingur í að láta allt líta vel út á mynd
- Með fullkomið vald á samfélagsmiðlum
- Skapandi með frjóan hug og góða máltilfinningu
- Drífandi með frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt
- Reynslubolti þótt sambærilegt starf sé ekki til
- Með háskólamenntun þótt starfsreynsla og þekking vegi þyngra.
Nánari upplýsingar veitir Tinna Jóhannsdóttir, markaðsstjóri, í síma 616 6096 eða með tölvupósti á tinna@smaralind.is
Opið fyrir umsóknir til og með 11.mars 2019. Umsókn ásamt kynningarbréfi og ferilskrá berist á tinna@smaralind.is