Bacco
2. hæð
Bacco er ítalskur "pop-up" veitingastaður sem er framhald af vinsæla matarvagninum Little Italy sem færir nú þessa fersku og vinsælu upplifun í Smáralind.
Bacco býður upp á ekta ítalskan mat þar sem allir réttir á matseðli eru gerðir frá grunni úr hágæða hráefnum. Girnilegir pastaréttir, súrdeigspizzur og ljúffengir smáréttir í anda ítalskrar hefðar sem hægt er að para með vönduðu úrvali vína.