66° Norður

1. hæð

Sjóklæðagerðin hf. - 66°NORÐUR er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands. Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er 66°NORÐUR afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Til baka í yfirlit

1. hæð