Þrettán nýir veitingastaðir opna í Smáralind
Sjáðu hvaða þrettán veitingastaðir verða á nýja og glæsilega veitingasvæðinu sem opnar í Smáralind síðar á árinu.
Fasteignafélagið Heimar og Smáralind hafa skrifað undir samning við þrettán veitingaaðila um opnun veitingastaða á nýju og stórglæsilegu veitingasvæði í austurenda Smáralindar sem opnar í haust.
Með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingarflóra Smáralindar með fjölbreyttara úrvali veitinga sem höfðar til hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá fólki í leit að fljótgerðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun. Veitingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir þær tugþúsundir sem búa og starfa í kringum Smáralind og verður kærkomin viðbót í veitingaflóru svæðisins, hvort sem er á daginn eða á kvöldin.
Nýir og þekktir veitingastaðir undir sama þaki
Af þeim þrettán veitingastöðum sem opna á nýja veitingasvæðinu eru tíu nýir í Smáralind og nokkrir sem hingað til hafa aðeins verið í miðbæ Reykjavíkur. Þá kemur veitingastaðurinn Hjá Höllu, sem margir þekkja frá Grindavik og flugstöðinni, auk tveggja alveg nýrra veitingastaða.
Veitingastaðirnir sem verða hluti af nýja veitingasvæðinu í Smáralind eru: Djúsí Sushi, Funky Bhangra, La Trattoria, Hjá Höllu, Fuego, Neo pizza, Yuzu borgarar, Gaeto Gelato, Sbarro, Serrano, Subway, Top wings og 5 Spice by XO.
„Við höfum fengið til liðs við okkur farsælustu veitingaaðila landsins til að sjá um matarupplifunina á þessu nýja svæði í Smáralind. Svæðið sjálft er hannað af Javier Bootello og hans fólki hjá Basalt arkitektum og hugsunin er að þarna geti fólk komið saman, notið góðs matar og átt huggulega stund í fallegu umhverfi hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin,” segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki á næstu vikum og að hægt verði að opna nýju veitingastaðina um mánaðarmótin október/nóvember.
Opnun veitingasvæðisins markar tímamót í sögu Smáralindar og setur nýjan mælikvarða á fjölbreytni og gæði veitingaframboðs í verslunarmiðstöðvum hér á landi.