Pakkajól Smáralindar

18. nóvember 2020

Taktu þátt í Pakkajólum Smáralindar. Þú kaupir eina aukagjöf og setur undir jólatréð í Smáralind og gleður þannig lítið hjarta um jólin. 

Um árabil hefur það verið hefð í jólaundirbúningi margra að kaupa eina aukagjöf og setja undir jólatréð í Smáralind og láta þannig gott af sér leiða fyrir jólin. Jólagjafasöfnun Smáralindar, Pakkajól, snýst um að öll börn á Íslandi eigi gleðileg jól og fái eitthvað fallegt á aðfangadag. Í ár var ákveðið að hefja söfnunina fyrr en vanalega þar sem þörfin hefur sjaldan verið meiri. Þörf er á gjöfum fyrir börn á aldrinum 0-18 ára. Smáralind kemur þeim gjöfum sem safnast undir tréð til Hjálparstarfs kirkjunnar, Fjölskylduhjálpar Íslands og Mæðrastyrksnefndar sem sjá um að koma þeim í réttar hendur. Pósturinn styrkir söfnunina með því að senda gjafir frá landsbyggðinni frítt til Smáralindar.

Til að leggja söfnuninni lið þarf að koma með gjöfina í Smáralind og setja undir jólatréð sem er á 1. hæð hjá ZARA. Við mælum með að koma með gjöfina innpakkaða því innpökkunarborðið í Smáralind er tímabundið lokað vegna sóttvarnarráðstafana. Merkja þarf gjöfina með upplýsingum um hvaða kyn og aldri hún er ætluð, hægt er að fá merkimiða á þjónustuborði Smáralindar og við jólatréð. Sértu búsett/ur á landsbyggðinni getur þú farið með gjöfina í næsta útibú Póstsins og hún verður send frítt til Smáralindar.

Smáralind tekur við gjöfum alveg fram að jólum en því fyrr sem gjafirnar berast því betra þar sem úthlutunardagar hjálparsamtakanna eru fyrir jól. 

 

Takk fyrir fyrir þitt framlag í því að gefa fleirum gleðileg jól