Icewear Magasín með nýja verslun í Smáralind
Icewear opnaði glæsilega Icewear Magasín verslun í Smáralind á dögunum og er það fyrsta verslunin sem fyrirtækið opnar í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu.
Icewear hefur um árabil framleitt útivistarfatnað, fylgihluti og gjafavörur og á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1972. Áhersla Icewear hefur ávallt verið á íslenska hönnun fyrir íslenskar aðstæður á góðu verði enda er útivist fyrir alla. Icewear hefur vaxið hratt undanfarin ár og hefur útvíkkað fjölbreytta útivistarlínu sína sem höfðar nú til breiðari hóps. Icewear býður upp á fatnað fyrir alla fjölskylduna og hefur ný barnalína Icewear fengið góðar viðtökur enda hentar hún vel í kuldanum.
Aðaláhersla Icewear Magasín hefur verið á fjölbreytt úrval af útivistarfatnaði, skóm og fylgihlutum. Icewear Magasín verslunin í Smáralind sker sig frá öðrum verslunum Icewear í vöruvali en þar er einnig að finna úrval af öðrum vörumerkjum samhliða Icewear. Má þar nefna gæða merki eins og skandinavíska framleiðandann Helly Hansen, ítölsku útivistarmerkin Salewa og Asolo skóframleiðandann.
Það er mjög mikilvægt skref fyrir Icewear Magasín að opna verslun á svona góðum stað þar sem við nálgumst enn frekar okkar markhóp sem þegar á leið um Smáralind. Úrvalið af verslunum og þjónustu í Smáralind hentar okkar viðskiptavinum vel og ég er nokkuð viss um að sá hópur á eftir að fara ört stækkandi.”Segir Aðalsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Icewear.
Starfsfólk Icewear Magasín leggur upp með að þjónusta vel alla þá sem sækjast eftir góðri útivistarvöru á góðu verði. Icewear stuðlar að aukinni útivist fyrir alla og “þín útivist – þín vellíðan” á vel við enda er útivist góð fyrir líkama og sál.
Í Icewear Magasín verða skemmtileg tilboð á öllum vörum í versluninni í heila viku frá opnun og því er vel þess virði að kíkja í Icewear Magasín í Smáralind.