Hér eru ánægðari viðskiptavinir annað árið í röð

21. janúar 2022

Við erum afar stolt og þakklát fyrir að Smáralind var annað árið í röð efst í flokki verslunarmiðstöðva í mælingum Íslensku ánægjuvogarinnar. 

Íslenska ánægjuvogin mælir ánægju viðskiptavina gagnvart fyrirtækjum en einnig er horft til annarra þátta eins og ímyndar, mati á gæðum og tryggð viðskiptavina. Við erum afar stolt og þakklát viðskiptavinum okkar og rekstraraðilum í Smáralind að hafa mælst annað árið í röð hæst í flokki verslunarmiðstöðva. 

Við gerðum ýmislegt á síðasta ári til að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini Smáralindar. Þar á meðal fjölguðum við hleðslustæðum við Smáralind, opnuðum fullkomna hjólageymslu og settum upp hleðslustöðvar fyrir rafhlaupahjól. Við endurbættum Hnoðrakot og leiksvæðin í húsinu og síðast en ekki síst settum við Smáralindarskólann á laggirnar sem er hugsaður til að efla enn frekar starfsfólk í verslun og þjónustu. 

Það er gaman að sjá að þessar aðgerðir skili sér í ánægðari viðskiptavinum og um leið hvetjandi að halda áfram á þessari braut. 

Takk fyrir okkur