Hér er opið á sumardaginn fyrsta

22. apríl 2025

Sumarstemningin verður allsráðandi í Smáralind á sumardaginn fyrsta, opið verður frá kl. 12-17, ís frá Valdísi í boði hússins og börnin frá sumarlega gjöf frá Smáralind í tilefni dagsins.

Sumardagurinn fyrsti er einn af þeim dögum sem við tengjum sterkast við von um hlýrri daga, sólarglætu og skemmtilegheit og ætlum við í Smáralind að fagna honum með ykkur.

Á fimmtudaginn, 24. apríl verður opið í Smáralind frá kl. 12-17 í tilefni sumardagsins fyrsta. Frá kl. 14-16 verður ísvagn frá Valdísi á svæðinu þar sem gestir og gangandi geta gætt sér á ljúffengum ís í boði hússins og börn sem líta við fá skemmtilega sumargjöf frá Smáralind. Það má því búast við hlýlegri og fjölskylduvænni stemningu í Smáralind á þessum fallega fyrsta sumardegi ársins.


Gleðilegt sumar