Förðunarráð fræðinganna

2. júlí 2019

Heimsins bestu förðunarfræðingar luma á hinum ýmsu leyndarmálum. Hins vegar eru nokkrar snyrtivörur sem margir hverjir eiga sameiginlegar og hafa valið fram yfir aðrar um árabil. Hér eru nokkrar þeirra en þær fást að sjálfsögðu allar í Smáralind.

 Hefurðu velt því fyrir þér hvernig sumar konur virðast hreinlega ljóma?Leyndarmál förðunarfræðinga um heim allan er Shimmering Skin Perfector frá Becca sem er highlighter í fljótandi formi. Förðunarfræðingurinn Lisa Eldridge hefur notað hann um áratugabil en best er að nota highlighterinn efst á kinnbeinin, niður nefið og fyrir ofan efri vör. Gott er að bera hann á með rökum förðunarsvampi og dúmpa létt inn í húðina. Áferðin er náttúruleg og ómótstæðileg. Becca-vörurnar fást í snyrtivörudeild Hagkaups, Smáralind.

Face and Body-farðinn frá MAC er einn af þessum förðum sem finna má í "kitti" flestra förðunarfræðinga. Ástæðan er einfaldlega sú að hann gefur einstaklega náttúrulega áferð, auðvelt er að byggja hann upp og svo þornar hann og endist vel. Einnig er mjög vinsælt að nota þennan mjög svo fljótandi farða á útlimi, enda smitast hann ekki í föt eftir að hann þornar. Mjög góð kaup fyrir brúðkaupsvertíðina sem er í vændum. MAC, Smáralind.

Pot Rouge frá Bobbi Brown eru kremaðir kinnalitir sem einnig má nota á varirnar. Snyrtivaran hefur verið vinsæl hjá þekktustu förðunarmeisturum heims um árabil en Bobbi Brown sjálf er hvað þekktust fyrir náttúrulegan förðunarstíl. Bobbi Brown-vörurnar fást í Hagkaup, Smáralind.

Guerlain eru einfaldlega bestir í bronserum og það vita bestu förðunarfræðingar heims. Guerlain-snyrtivörurnar fást í Hagkaup, Smáralind.

Paint Pot-in frá MAC eru sennilega til í "kittum" flestra förðunarfræðinga en snyrtivaran er að margra mati besti augnskuggagrunnurinn í bransanum. Liturinn Groundwork er hinn fullkomni náttúrulegi skuggalitur. MAC, Smáralind.

Ef þú ert að leita að fullkomnum nude þá er varalitur nr. 642 úr Color Riche-línu L´Oréal málið. L´Oréal fæst í Hagkaup og Lyfju, Smáralind.

24/7 Glide-On augnblýantarnir frá Urban Decay eiga fáa sína líka en þeir eru litsterkir og haldast á augunum allan liðlangan daginn. Urban Decay fæst í Hagkaup, Smáralind.

Ef þú vilt losna við glansinn á húðinni en síður fá púðurkennda áferð er litlausa púðrið frá Sensai þinn besti vinur. Sensai fæst í Hagkaup, Smáralind.


Þær eru ófáar íslensku konurnar sem eru aðdáendur 38°C-maskarans frá Sensai. Volumizer-útgáfan af þessum gamla, góða lætur augnhárin líta út fyrir að vera einstaklega þykk og þau haldast uppbrett allan daginn.