Extra sæt partýtrix

22. nóvember 2019

Hér eru leyndarmál förðunarmeistara sem gerir okkur extra sætar og lætur förðunina haldast á sínum stað fram á rauða nótt.

Þið hafið væntanlega heyrt það nokkrum sinnum áður en undirbúningur fyrir farða skiptir miklu máli. Húðin þarf að vera vel nærð og ekki er verra að nota farðagrunn með ljómandi áferð til þess að gefa húðinni frísklegt yfirbragð. Við elskum Glowing Base frá Sensai. (fæst í Hagkaup)

Góður farði er gulls ígildi og margir frábærir komnir á markað upp á síðkastið. Ef þú ert að leita að algerri prinsessuvöru þá er Parure Gold frá Guerlain með ómótstæðilegum ljóma en þekur á sama tíma ótrúlega vel. (fæst í Hagkaup)

Galdurinn á bakvið ljóma sem margir förðunarmeistarar framkalla svo einstaklega vel felur í sér notkun á highlighternum Shimmering Skin Perfector frá Becca. Prófaðu að nota hann í fljótandi formi með rökum förðunarsvampi eins og þeim frá Real Techniques og dúmpaðu á kinnbeinin, niður nefið, fyrir ofan efsta part augabrúnanna og efri vör. Smá á viðbeinið ef þú ert í stuði. J-lo hvað! (fæst í Hagkaup)

 Trikkið við að fá augnskugga til að haldast á allan daginn og fram á rauða nótt er einfalt. Nokkurn veginn hver einasti förðunarmeistari notar svokölluð Paint Pot frá MAC. Kremaðir augnskuggar sem eru einnig besti grunnurinn fyrir púðurkennda augnskugga. Liturinn Groundwork er hinn fullkomni skuggalitur. (fæst í MAC, Smáralind)

Ef þú vilt fágaðan glans á augun eða "fullorðinsglimmer" sem er einstaklega flatterandi mælum við með Aura Dew frá Shiseido en svampkenndi glimmerskugginn býr nánast til "wet look" á augnlokin sem eru svo móðins um þessar mundir. Notist á mitt augnlokið og jafnvel í augnkrókinn fyrir auka krydd. (fæst í Hagkaup)

Augabrúnirnar ramma andlitið inn og ekki sjálfgefið að finna lit við hæfi. Við mælum með Couture Brow augabrúnaskrúfblýöntunum frá YSL en þeir koma í litatónum fyrir allar konur. (fæst í Hagkaup)

Ýfðu brúnirnar svo upp og haltu þeim á sínum stað fram á nótt með augabrúnageli í stíl.

Gerviaugnhár gera heilmikið fyrir augnumgjörðina og gaman að nota þau við fínni tilefni. Nú er hægt að fá ódýr og ferlega góð augnhár í Lyfju eða Hagkaup. Við mælum með Kiss-augnhárunum en þau eru einstaklega náttúruleg. (fæst í Lyfju og Hagkaup)

Ef þú ert með olíukennda húð og leitar að púðri til að "setja" förðunina án púðurkenndrar áferðar mælum við með lausa "ósýnilega" púðrinu frá Sensai. (fæst í Hagkaup)

All Nighter-farðaspreyið frá Urban Decay fær allt til að haldast á sínum stað frameftir öllu. (fæst í Hagkaup)

Góður varablýantur rammar varirnar fallega inn, stækka þær og hjálpa varalitnum að haldast á sínum stað lengur. Subculture frá MAC er vinsæll litur sem gengur með öllum varalitum. (fæst í MAC, Smáralind)

Gel-setter yfirlakkið frá Essie gefur nöglunum "pró" útlit og heldur naglalakkinu fallegu lengur en ella. Við mælum eindregið með. (fæst í Lyfju og Hagkaup)

Gervibrúnka er nánast nauðsynleg á þessum dimmustu mánuðum þegar húðin okkar er oft orðin grá og guggin. Við elskum náttúrulega brúnkuspreyið frá Marc Inbane sem gefur einstaklega fallegan lit og er auðvelt í notkun. (fæst í Lyfju í Smáralind) 

   Gervibrúnka er nánast nauðsynleg á þessum dimmustu mánuðum þegar húðin okkar er oft orðin grá og guggin.