
Miðnæturopnun
3. júní
Glæsileg tilboð um allt hús, sumarstemning og opið til 24!
Dagskrá
Komdu á Miðnæturopnun í Smáralind og njóttu frábærra tilboða í sumarstemningu.
Fjölskylduvæn dagskrá verður á milli 16 og 18 og þegar kvölda tekur bíða spennandi kynningar, gómsætt smakk og góð stemning. Fannar úr Hipsumhaps kemur fram í nýrri verslun Levi's og Una Torfa flytur ljúfa tóna í Garðinum mathöll.

Sólon og Dimma dúskur
Ofurhetjurnar Sólon og Dimma dúskur mæta á svæðið og bjóða upp á fjöruga barnaskemmtun fyrir yngstu gestina. Söngur, dans og skemmtileg stemning sem fær krakkana til að taka þátt og njóta sín.
- 16:45-17:45
- 1. hæð á sviði á milli Name It og Zara

Ella's Kitchen
Smakk í boði á The One ávaxtaskvísum og Puff Pops frá Ella's Kitchen fyrir þau yngstu.
- 16-18 eða á meðan birgðir endast
- 1. hæð á móti Name It

Bob Snail ávaxtarúllur
Gómsætar Bob Snail ávaxtarúllur í boði. Ávaxtarúllurnar eru eingöngu gerðar úr ávöxtum og berjum, án viðbætts sykurs og gervilita. Fullkomnar sem fljótlegt snarl í skólanum, vinnunni eða á ferðinni.
- 16-18 eða á meðan birgðir endast
- 1. hæð á móti Name It

Frostpinnar
Frostpinnar í boði fyrir káta krakka á meðan birgðir endast.
- 16-18 eða á meðan birgðir endast
- 1. hæð á móti Name It

Klói Kókómjólk
Klói gleður gesti með ljúffengri kókómjólk og Klóa handklæðum.
- 16-18 eða á meðan birgðir endast
- 2. hæð á móti Mango

Ballerina kex
Lukkuhjól sem hægt er að vinna kexpakka og auglýsingavarnað - Nói Siríus
- 16-18 eða á meðan birgðir endast
- 1. hæð fyrir framan A4

Hipsumhaps í Levi's
Komdu og fagnaðu með Levi's! Ný og glæsileg verslun opnar í Smáralind og í tilefni þess mun Fannar úr Hipsumhaps mæta og taka nokkur lög inni í versluninni.
- 20
- 1. hæð í verslun Levi's

Una Torfa í Garðinum
Njóttu notalegrar sumarstemningar í Garðinum mathöll þar sem Una Torfa flytur ljúfa tóna fyrir gesti. Tilvalið tækifæri til að setjast niður með drykk í hönd og njóta góðrar tónlistar.
- 22-22:30
- Garðurinn mathöll

Kokteilavagninn
Ljúffengir og sumarlegir óáfengir kokteilar í boði frá Kokteilavagninum.
- 20-23
- 1. hæð á móti Karakter

Ljúfur sumardjass
Djasstríóið Klappar spilar ljúfan sumardjass fyrir gesti og gangandi.
- 20:30-22:30
- 1. hæð á sviði á milli Zara og Name It

Fangaðu augnablikið
Stígðu inn í fortíðina og taktu skemmtilega mynd í Retro myndakassanum! Safnaðu vinahópnum eða fjölskyldunni saman og festu minningarnar á filmu.
- 19-24
- 1. hæð hjá H&M

Sumarstemning í AIR
Kíktu við í AIR þar sem Dj Ragga Hólm skapar góða stemningu, í boði verður fagleg ráðgjöf fyrir hlaupara og lukkuhjól með spennandi vinningum.
- 19-22
- 2. hæð í verslun AIR

Ostaveisla frá MS
MS býður upp á ljúffengt ostasmakk þar sem gestir geta bragðað á fjölbreyttu úrvali gæðaosta. Komdu við, uppgötvaðu nýja uppáhalds ostinn þinn og njóttu sannkallaðrar ostaveislu.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Ölgerðin kynnir nýtt drykkjarvörumerki
Ölgerðin kynnir splunkunýtt drykkjar vörumerki og á þeim kynningarbás verður mikið stuð! Skemmtileg keppni þar sem hægt er að vinna glæsilega vinninga, ásamt því sem gestum verður boðið að vera með þeim allra fyrstu til að smakka nýja drykkinn.
- 1. hæð á móti Vero Moda

Trítlar frá Nóa Siríus
Nói Síríus verður í Trítil-óðu stuði! Gestir geta átt von á litríkri stemningu, skemmtilegum leikjum, óvæntum glaðningum og að sjálfsögðu fullt af Trítlum.
- 1. hæð hjá H&M

Íssmakk frá Gaeta Gelato
Ljúffengt íssmakk í boði frá Gaeata Gelato.
- 2. hæð hjá H&M

Coca-Cola
Coca-Cola verður á staðnum með skemmtilegt lukkuhjól þar sem gestir geta látið reyna á heppnina og unnið spennandi vinninga. Einnig verður boðið upp á smakk af Coke Zero Zero í nýjum glæsilegum umbúðum.
- 1. hæð á H&M

Dóttir Skin
Kynning á Dóttir Skin ásamt lukkuhjóli þar sem hægt verður að vinna Dóttir Skin vörur.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Beautyklúbbs-hringurinn
Beautyklúbburinn: Verslaðu tvær vörru frá vörumerkjum Beautyklúbbsins og fáðu að snúa lukkuhjóli, vinningur í hvert skipti.
NYX Professional Makeup: Við kaup á tveimur NYX vörum færðu að velja gjöf af NYX Goodie Bar.
L'Oréal Paris Skincare: Fáðu Gua Sha andlitsstein í kaupauka við kaup á serum frá L'Oréal Paris.
Bondi Sands: Sérstakur kaupauki fylgir með keyptum Bondi Sands vörum.
- 1. hæð fyrir framan Søstrene Grene

Happy Hydrate
Láttu reyna á heppnina í lukkuhjóli Happy Hydrate! Í boði eru spennandi vinningar og varningur.
- 1. hæð fyrir framan Extraloppuna

Bloom
Danól heildverslun verður á staðnum með kynningu á vinsælum Bloom vörum. Gestir geta kynnt sér vörulínuna, fengið ráðgjöf og notið sérstakra kaupauka.
- 1. hæð á milli New Yorker og 4F

Blue Lagoon Skin Science
Blue Lagoon Skin Science býður upp á húðgreiningu, prufur á vinsælum vörum. Við kaup á tveimur 75 ml möskum í Lyfju færðu Mineral Mask eða Silica Mud Mask að gjöf. Tilvalið tækifæri til að dekra við húðina.
- 1. hæð fyrir framan Lyfju

RefectoCil
Sérfræðingur frá Refectocil verður á staðnum og býður upp á sýnikennslu hvernig á að nota Beautylash Two Go litapennann og Brow Glow augabrúnagelið.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Mist & Co.
Komdu með förðunarburstana þína í ókeypis burstaþrif og snúðu lukkuhjóli með gjöfum frá Mist & Co.
- 1. hæð fyrir framan Flying Tiger

Vichy, La Roche Posay og CeraVe sólarvarnir
Danól og Lyfja bjóða upp á sumarlega upplifun með kynningu á sólarvörnum frá Vichy, La Roche-Posey og CeraVe. Kíktu við, fáðu prufur, fræðslu um sólarvörn og njóttu skemmtilegrar sumarstemningar á staðnum.
- 1. hæð á móti Lyfju

MUNA
MUNA kynnir vítamín og vörur sem henta vel í nestistöskuna við hin ýmsu tilefni. Gefins nestisbox og smakk af MUNA vörum á meðan birgðir endast.
- 1. hæð fyrir framan Søstrene Grene

Valor súkkulaði
Súkkulaðiunnendur ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara! Nathan býður upp á smakk á ljúffengu Valor súkkulaði fyrir gesti.
- Hér og þar um húsið

b.tan
Kynntu þér vinsælu brúnkuvörurnar frá b.tan. Snúðu lukkuhjólinu með því að fylgja b.tan á Instagram og átt möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Einnig verður myndakassi á staðnum þar sem hægt er að skella sér „á ströndina“ og prentaðu út myndina til minninga.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Líf Kírópraktík
Fáðu fría stoðkerfisgreiningu og taugaskanna hjá Líf Kírópraktík. Gestir fá einnig sérstakt Miðnæturopnunartilboð á fyrsta tíma sem er aðeins í boði þetta kvöld.
- 1. hæð á móti Weekday

Naís snakk
Hafðu það NAÍS á miðnæturopnun Smáralindar. Endurhugsum kósíkvöldin með loftpoppuðu snakki, komdu og smakkaðu.
- 1. hæð fyrir framan Søstrene Grene

Barbells próteinstykki
Gríptu þér prótein á hentugan máta með Barebells! Gestum og gangandi gefst færi á að smakka nokkur af fjölda bragðtegunda Barebells.
- 2. hæð á móti Epli

Lindex
Lindex er að undirbúa opnun nýrrar verslunar í Smáralind! Komdu við og nældu þér í afsláttarmiða sem hægt verður að nýta þegar dyrnar opnast á næstu dögum.
- 1. hæð fyrir framan nýja Lindex verslun (hjá Hagkaup)

Kynning á XPENG G6
Bílaumboðið Una kynnir XPENG G6, rúmgóður og glæsilegur rafbíll sem sameinar kraft, þægindi og lúxus. Hann fæst fjórhjóladrifinn, með allt að 510 km drægni og hleður frá 10–80% á aðeins 12 mínútum.
- 1. hæð fyrir framan Extraloppuna