
Rafrænt gjafakort
Rafrænt gjafakort Smáralindar er einföld og þægileg leið til að gefa gjöf sem hittir í mark. Gjöfin berst beint í síma viðtakanda í gegnum Smáralindar appið, þar sem auðvelt er að fylgjast með inneign og færslum. Ef viðtakandi á fleiri en eitt rafrænt gjafakort sameinast þau sjálfkrafa í eitt.
Gjafakortið gildir í öllum verslunum og veitingastöðum Smáralindar og gefur viðtakandanum frelsi til að velja sér það sem hann langar í.
Svona virkar rafrænt gjafakort

1
Gefa gjöf
Kauptu rafrænt gjafakort hér á vefnum, í Smáralindar appinu eða í fyrirtækjaþjónustunni. Gjöfina getur þú gert persónulegri með skemmtilegum skilaboðum, mynd eða myndbandi. Ná í app hér.

2
Fá gjöf
Að fá rafrænt gjafakort Smáralindar er skemmtileg upplifun. Gjöfin berst með SMS skilaboðum eða tölvupósti og er komin í notkun á örfáum mínútum. Gjafakortið og kveðjan geymast í Smáralindar appinu, þannig að auðvelt er að rifja upp góðu stundina aftur og aftur, jafnvel eftir að gjafakortið hefur verið notað.

3
Nota gjöf
Rafræna gjafakortið gildir í öllum verslunum og veitingastöðum Smáralindar. Með kortið í símanum er það alltaf við höndina og notast á sama einfalda hátt og önnur greiðslukort í símaveskinu.