Tón­leik­ar í Garð­in­um

Djassband spilar í Garðinum mathöll

Smáralind og útvarpsstöðin K100 hafa tekið höndum saman um að styðja við ungt og upprennandi íslenskt tónlistarfólk og skapa því vettvang til að koma sér og tónlist sinni á framfæri.

Í sumar og fram á haust verður boðið upp á reglulega tónleika í Garðinum þar sem fjölbreyttur hópur tónlistarfólks stígur á svið. Tónleikarnir fara fram annan hvern fimmtudag kl. 20.30 og eru öllum opnir.

Garðurinn er ný og glæsileg mathöll í hjarta Smáralindar þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða. Í mathöllinni er fullbúið svið og öll aðstaða til tónleikahalds, sem skapar notalega umgjörð fyrir tónlistarfólk og gesti.

Næstu tónleikar fara fram fimmtudaginn 6. ágúst kl. 20.30 þegar söngkonan MAIAA stígur á svið og kynnir tónlist sína.

Tónleikaröðin er tilvalið tækifæri til að kynnast nýju íslensku tónlistarfólki og njóta notalegrar kvöldstundar yfir góðum mat og lifandi tónlist.

Kynntu þér allt um næstu tónleika hér.