Djassband spilar í Garðinum mathöll

Við­burð­ir í Garð­in­um

Dagskrá

Tónleikar og uppákomur sem skapa skemmtilega stemningu yfir mat og drykk eru reglulega í Garðinum mathöll.

Smáralind og K100 taka höndum saman um að styðja ungt og efnilegt tónlistarfólk. Næstu vikurnar mun fjölbreytt tónlistarfólk stíga á svið í Garðinum og skapa notalega stemningu fyrir matargesti.

Komdu við, njóttu góðs matar og kynntu þér nýjar raddir í íslensku tónlistarlífi.

  • Heather Ragnarsdóttir

    Heather Ragnars er íslensk tónlistarkona sem ólst upp í Montreal og hefur komið fram víða um heim, meðal annars í Frakklandi, Írlandi, Eistlandi og Bandaríkjunum. Fjölmenningarlegur bakgrunnur hennar hefur mótað tónlist hennar og listræna sýn, en lesendur Cult MTL hafa valið hana meðal fremstu lagahöfunda Montreal. Heather vinnur nú að nýrri tónlist í samstarfi við NKP Songs á Norður-Írlandi. Nýjasta lag hennar, „Nothing to Offer“, markar nýja stefnu með strengjadrifnum og kvikmyndalegum tónheimi.

    • Fimmtudagur 12. nóvember kl. 20:30
    • Garðurinn mathöll
  • Birta Dís

    Birta Dís er 19 ára söngkona og lagahöfundur sem hefur samið eigin tónlist frá unga aldri. Hún gaf út sitt fyrsta lag, „Fljúgðu burt“, undir lok árs 2025 og einkennist tónlist hennar af einlægum og persónulegum textum í bland við akústískan popp hljóm. Birta Dís var tilnefnd sem nýliði ársins á Íslensku hlustendaverðlaununum 2026 og vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu. Nýjasta smáskífa hennar, „Vonbrigði“, kom út á dögunum.

    • Fimmtudagur 26. nóvember kl. 20:30
    • Garðurinn mathöll
  • GDRN

    Garðurinn fagnar 1 árs afmæli og af því tilefni mun engin önnur en GDRN stíga á svið. Komdu og fagnaðu með okkur, njóttu ljúffengs matar og drykkjar og skemmtilegrar tónlistar í góðri stemningu.

    • Föstudagur 27. nóvember kl. 20
    • Garðurinn mathöll