
Bleik miðnæturopnun
1. október
Til stuðnings Bleiku slaufunni
Dagskrá
Komdu á Miðnæturopnun í Smáralind og njóttu frábærra tilboða í Bleikri stemningu.
Fjölskylduvæn dagskrá verður á milli 16 og 18 og þegar kvölda tekur bíða spennandi kynningar, gómsætt smakk og góð stemning. Jón Jónsson stígur á svið í Garðinum mathöll og fyllir Garðinn af ljúfum tónum og góðri stemningu.

Jón Jónsson í Garðinum mathöll
Jón Jónsson stígur á svið í Garðinum mathöll og heldur uppi góðri stemningu fyrir gesti.
- Kl. 22
- Garðurinn mathöll

Bleika búðin
Krabbameinsfélagið verður með Bleiku búðina í Smáralind þar sem gestir geta keypt Bleiku slaufuna ásamt öðrum varningi og þannig lagt mikilvægu málefni lið.
Bleika slaufan er tákn um samstöðu, stuðning og von fyrir þau sem greinst hafa með krabbamein og alla þá sem standa þeim nærri.
- Kl. 11-24
- 1. hæð fyrir framan Pennan Eymundsson

Risa happdrætti
Smáralind stendur fyrir risa happdrætti til styrktar Bleiku slaufunni þar sem yfir 125 glæsilegir vinningar eru í boði. Happdrættismiðinn kostar 1.500 kr. og rennur allur ágóði óskiptur til Bleiku slaufunnar.
Dregið verður úr happdrættinu 2. október, fylgstu með hér.
- Kl. 11-24
- 1. hæð fyrir utan Søstrene Grene og í Bleiku búðinni

Frostpinnar í boði hússins
Svalandi bleikir frostpinnar í boði hússins.
- Kl. 16 og á meðan birgðir endast
- 1. hæð fyrir framan Name It

Klói kókómjólk
Klói verður á svæðinu og gleður gesti með ljúffengri kókómjólk.
- Kl. 16:30-17:30
- 2. hæð fyrir framan Mango

Ella's Kitchen
Boðið verður upp á ávaxtaskvísur og gómsætt snakk frá Ella's Kitchen fyrir yngstu gestina.
- Kl. 16 og á meðan birgðir endast
- 1. hæð fyrir framan Name It

Blöðrulistamaður
Blöðrulistamaður verður á svæðinu og töfrar fram skemmtileg blöðrudýr fyrir káta krakka.
- Kl. 16-18
- 1. hæð fyrir framan Name It

Frón fagnar afmæli
Frón heldur upp á 100 ára afmæli í ár og blæs að því tilefni til afmælisveislu á Bleikri miðnæturopnun. Í boði verður afmæliskaka frá Myllunni fyrir gesti og gangandi auk þess sem hægt verður að snúa lukkuhjóli til að vinna gómsætt Frónkex og annan varning.
- Kl. 18 og á meðan birgðir endast
- 1. hæð fyrir framan H&M Home

Bleik stemning í Hagkaup
Too faced verður í Hagkaup með charmbar frá 18-21 þar sem allir sem kaupa varagloss geta sett charm á glossinn. Elín Reynis verður í snyrtivörudeildinni kl. 19-21, spjallar við gesti og veitir ráðgjöf. Búbblur, makkarónur og notaleg stemning verða svo í boði fyrir gesti.
- 1. hæð í Hagkaup

Gaeta Gelato
Gaeta Gelato gleður gesti með ljúffengum gelato ís, fullkomið sætt stopp.
- Kl. 20 og á meðan birgðir endast
- 1. hæð fyrir framan H&M

Valor súkkulaði
Valor býður gestum upp á gómsætt súkkulaði.
- 1. hæð fyrir utan Pennan Eymundsson

Nature Valley
Nature Valley býður gestum upp á smakk af granólastöngum.
- 1. hæð fyrir utan Pennan Eymundsson

SNCK próteinstykki
Perform kynnir SNCK, ný og ómótstæðileg próteinstykki sem þú verður að smakka.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Dave & Jon's
Dave & Jon's býður upp á smakk af nýjustu döðlutegundinni Sour Apple & Elderflower, vinsælustu tegundinni þeirra frá upphafi, Saltlakkrís döðlum ásamt þurrkuðu Mango Chili mangói. Kíktu við og finndu þitt uppáhald.
- 1. hæð fyrir framan Søstrene Grene

Guli miðinn
Guli miðinn kynnir nýtt útlit vörumerkisins ásamt vítamínum, bætiefnum og spennandi nýjungum. Gestir geta freistað gæfunnar á lukkuhjóli og unnið varning frá Gula miðanum. Einnig verða sérstök tilboð á vörum frá Gula miðanum í Lyfju.
- 1. hæð fyrir utan Lyfju

Líf Kírópraktík
Líf Kírópraktík býður upp á fría stoðkerfisgreiningu. Einnig verður hægt að bóka tíma gegn staðfestingargjaldi sem rennur óskipt til styrktar Bleiku slaufunni.
- 1. hæð fyrir framan Vero Moda

Fler
Cu2 kynnig Fler, ítalskt lúxusmerki í rakvélum og sjálfsumhirðu sem leggur áherslu á fallega hönnun og vandaðar vörur. Vörumerkið býður meðal annars upp á rakvélar í fallegum litum, ilmandi raksápur og líkamsvörur.
Hjá Fler verður glæsilegt happdrætti þar sem veglegir vinningar frá vörumerkinu verða í boði.
- 1. hæð fyrir utan Pennann Eymundsson

Frank Body
Cu2 kynnir Frank Body, ástralskt líkamsvörumerki, best þekkt fyrir vinsælu kaffiskrúbbana sína. Merkið býður upp á fjölbreytt úrval líkamsvara, krema og skrúbba með virkum efnum fyrir mismunandi þarfir húðarinnar.
Hjá Frank Body geta gestir snúið lukkuhjóli og átt möguleika á veglegum vinning frá vörumerkinu.
- 1. hæð fyrir framan Pennann Eymundsson

Nýr Boss ilmur
Halldór Jónsson verður með ilmkynningu þar sem glænýr dömuilmur frá BOSS verður kynntur fyrir gestum.
- 1. hæð fyrir framan Flying Tiger

Bedazzel með Beautyklúbbnum
Ef keyptar eru tvær vörur frá vörumerkjum Beautyklúbbsins geta gestir látið „bedazzle“ aðra vöruna á bás Beautyklúbbsins, þar sem hún er skreytt með glitrandi steinum og fær þannig einstakt og persónulegt útlit.
- 1. hæð fyrir framan 66°Norður

YSL varalitaáritun
Með hverjum keyptum Rouge Pur Couture varalit frá YSL fylgir frí persónuleg áletrun á varalitinn.
- 1. hæð fyrir framan Lindex

Lancôme ilmkynning
Lancôme verður með ilmkynningu þar sem gestir geta kynnt sér og prófað nýja La Vie Est Belle Cherry ilminn.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Vichy
Gestir geta kynnt sér vörur frá Vichy og fylgir Vichy snyrtitaska með Gua Sha að gjöf þegar keyptar eru tvær vörur úr Liftactiv Collagen Specialist 16 línunni eða Minéral 89 línunni.
- 1. hæð fyrir framan Lyfju

Nærandi stuðningur Blue Lagoon Skin Science
Í tilefni af Bleikum október renna 30% af sölu allra Blue Lagoon Skin Science varasalva í október til Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins. Varasalvinn kemur sem er í bleikum umbúðum, verndar og mýkir varirnar samstundis ásamt því að innsigla raka.
Blue Lagoon Skin Science kynnir varasalvann og verður hann til sölu í Lyfju og Hagkaup. Allir sem kaupa varasalvann fá prufu af BL+ Lip Renewal Mask með. Kaupaukar fylgja kaupum yfir 10.000 kr. í verslun Lyfju.
- 1. hæð fyrir framan Lyfju

Nýtt Sprite á markaði
Coca-Cola Europacific Partners býður gestum Miðnæturopnunar í Smáralind upp á Sprite Chill Mint, skemmtilega nýjung frá Sprite sem sameinar ferskt sítrusbragð og kælandi mintutilfinningu. Komdu við og gríptu þér eina ískalda dós og upplifðu ferskleikann.
- 1. hæð fyrir utan A4

ChitoCare
ChitoCare kynnir Innsæi, spa-línu sem tengir þig við kraft hafsins og kyrrðina sem býr innra með þér. Lukkuhjól verður í boði kl. 20-22 þar sem gestir sem fylgja Chitocare á Instagram geta unnið til veglegra vinninga, meðal annars vörur í fullri stærð.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Nýr orkudrykkur frá BLOOM
Bloom verður með kynningarbás þar sem gestir geta kynnt sér og smakkað nýja Bloom orkudrykkinn.
- 1. hæð fyrir framan Jack & Jones

Nýtt bragð frá Happy Hydrate
Happy Hydrate gefur smakk af nýja bragðinu Strawberry Lemonade, ferskri og bragðgóðri nýjung sem er tilvalið að prófa.
- 2. hæð fyrir framan Epal

Dóttir Skin
Dóttir Skin verður með lukkuhjól þar sem gestir sem versla Dóttir Skin vörur í Hagkaup eða Lyfju geta sýnt kvittun og þannig átt möguleika á að vinna vörur. Meðal vinninga verður glæný vara frá Dóttir skin sem kemur í verslanir sama dag.
- 1. hæð fyrir framan Hagkaup

Maika'i
Maika'i býður gestum upp á smakk af ferskum og bragðgóðum skálum og drykkjum.
- 1. hæð fyrir framan Karakter

SkincareLab
Þau sem versla tvær eða fleiri vörur í SkincareLab fá að snúa lukkuhjóli og velja sér veglegan kaupauka.
- 2. hæð í SkincareLab

Húðgreining hjá L'Occitane
Boðið verður upp á fría húðgreiningu með húðgreiningartæki þar sem gestir geta fengið nánari innsýn í ástand og þarfir húðarinnar.
- 19-22
- 2. hæð á móti Kappahl

Dreymir þig um næsta ferðalag?
Dreymir þig um næsta ferðalag? Kíktu til Kilroy í spjall.
KILROY verður á staðnum með bás þar sem reynslumiklir ferðaráðgjafar eru tilbúnir að ræða allt sem tengist ferðalögum. Hvort sem þú ert að hugsa um heimsreisu, ævintýraferð, brúðkaupsferð, hópferð eða einfaldlega næsta frí, þá hjálpum við þau að finna réttu leiðina.
Kíktu við og fáðu ferðaráð, innblástur og kynntu þér þjónustuna sem KILROY býður upp á fyrir forvitna ferðalanga sem vilja sjá meira af heiminum.
Einnig verður í boði að snúa ukkuhjóli þar sem hægt verður að vinna skemmtilega vinninga.
- 1. hæð fyrir framan Karakter

Rafbíllinn sem ruddi brautina kominn í nýjan búning
Söluráðgjafi frá BL kynnir nýjan Nissan LEAF, glæsilegan 100% rafknúinn bíl sem hefur nú þegar unnið til fjölda verðlauna. Nýr LEAF sameinar fallega hönnun, rúmgott innanrými og snjalla tækni, auk enn meiri drægni en áður, allt að 622 km.
Kíktu við og bókaðu þig í reynsluakstur.
- 1. hæð fyrir framan Extraloppuna