Af­mæl­is­há­tíð

10. og 11. október

Dagskrá

Komdu á 25 ára afmælishátíð Smáralindar dagana 10. og 11. október og upplifðu sannkallaða aldamótastemningu. Við færum okkur aftur til ársins 2001 með nostalgískri tísku, tónlist og skemmtilegum minningum frá þessum tíma. Fjölbreytt dagskrá verður um alla göngugötuna, boðið verður upp á risa afmælisköku og fleira gómsætt. Þegar kvölda tekur stíga Stebbi Hilmars, Jónsi og Svala Björgvins á svið og rifja upp gamla góða tíma með kunnulegum slögurum.

  • Afmæliskaka

    Boðið verður upp á risa afmælisköku og ilmandi kaffi frá Te & Kaffi. Djúshúsið frá Ölgerðinni verður einnig á staðnum og býður gestum upp á svalandi djús.

    • Laugardag kl. 14 og á meðan birgðir endast
    • 1. hæð á milli Name It og Zara
  • Jónsi ásamt skólakór Smáraskóla

    Jónsi og skólakór Smáraskóla hefja afmælisgleðina í Smáralind með því að taka afmælissönginn í tilefni dagsins. Komdu og taktu undir með okkur og njóttu hátíðlegrar stundar.

    • Laugardag kl. 14
    • 1. hæð á sviði á milli Name It og Zara
  • Afmæliskórónugerð með ÞYKJÓ

    Smáralind á afmæli og þér er boðið í hátíðlega smiðju að búa til þína eigin fagurgræna smárakórónu í tilefni dagsins.

    Komdu og leyfðu sköpunarkraftinum að leysast úr læðingi með hönnuðum ÞYKJÓ.

    • Laugardag kl. 14-16
    • 1. hæð fyrir framan H&M Home
  • Andlitsmálning

    Andlitsmálning og blöðrur

    Í boði verður að láta skreyta sig með flottri andlitsmálun. Einnig verður boðið upp á blöðrur og nammi fyrir gesti og gangandi.

    • Laugar- og sunnudag kl. 14-16
    • 1. hæð fyrir framan Vero Moda
  • 2001 tónleikar í Garðinum mathöll

    Það verður sannkölluð nostalgíustemning í Garðinum mathöll þegar Stebbi Hilmars, Jónsi og Svala Björgvins stíga á svið. Þau færa okkur aftur til aldamótanna með kunnulegum slögurum sem flest okkar þekkja og elska.

    Komdu og rifjaðu upp gamla góða tíma og njóttu frábærar tónlistar yfir dýrindis mat og drykk.

    • Laugardag kl. 20
    • Garðurinn mathöll
  • BrummBrumm Pop-Up

    Í tilefni 25 ára afmælis Smáralindar verður farandprentsmiðjan og galleríið Brumm Brumm á svæðinu með litrík verk, skapandi stemningu og skemmtilega nostalgíu.

    Brumm Brumm er einstök prentsmiðja í gömlum húsbíl þar sem klassískar prentaðferðir, litir og hönnun mætast. Gestir geta skoðað fjölbreytt prentverk og fylgst með prentferlinu þar sem verkin verða til fyrir augum þeirra.

    • Laugar- og sunnudag
    • 1. hæð á móti New Yorker
  • Aftur til fortíðar

    Við ferðumst til ársins 2001 og færum göngugötu Smáralindar í sannkallaðan aldamótabúning. Smellirnir frá þessum tíma óma um gangana, tískan frá aldamótunum lifnar við og nostalgískar vörur sem margir muna eftir vekja upp góðar minningar.

    Gestir geta einnig rifjað upp liðna tíma með myndbrotum frá árinu 2001, auk þess að stíga inn í sérstakt 2001-herbergi og smella af mynd.

    • Hér og þar um húsið á 1. og 2. hæð