Upp­lifðu draum­inn

Sjáðu draumabílinn í Smáralind 9. og 10. maí.

Bílaáhugafólk og forvitnir gestir geta átt von á einstökum viðburði í Smáralind dagana 9. og 10. maí, þegar úrval af glæsilegum lúxusbílum verður til sýnis.

Á sýningunni gefst gestum kostur á að skoða nýjustu gerðirnar frá virtum framleiðendum á borð við Audi, Mercedes-Benz, BMW, Land Rover og Porsche. Hér er því kjörið tækifæri til að upplifa hönnun, tækni og þægindi sem skilgreina nútíma lúxusbíla.

Sýningin er opin öllum og fer fram á opnunartíma Smáralindar. Sérfræðingar frá bílaumboðunum verða á staðnum til að kynna bílana, svara spurningum og veita ráðgjöf fyrir þau sem vilja kynna sér möguleika á næstu kaupum eða einfaldlega njóta þess að skoða draumabílinn í návígi.

Sýningin hentar jafnt áhugafólki um bíla, fjölskyldum og öllum þeim sem vilja gera sér glaðan dag og upplifa eitthvað nýtt í Smáralind.

Ekki láta þetta fram hjá þér fara, kíktu við og upplifðu drauminn.