Skilmálar rafrænna gjafakorta
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um notkun og kaup á vöru eða þjónustu í gegnum rafrænt gjafakortakerfi Smáralindar ehf., kt. 550496-2329, Hagasmára 1, 201 Kópavogi (hér eftir „Smáralind“) sem og aðrar hugbúnaðarlausnir og forrit sem eru tengdar smáforriti Smáralindar (hér eftir „rafrænt gjafakortakerfi“).
Yay ehf., kt. 671218-0940, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík (hér eftir „Yay“) þróaði smáforritið(e. app) sem heldur utan um rafræna gjafakortið og rekur það fyrir hönd Smáralindar. Þar sem skilmálum þessum sleppir gilda Almennir skilmálar Yay jafnframt um notkun rafræns gjafakortakerfis Smáralindar.
Skilmálar þessir skilgreina réttindi og skyldur Smáralindar annars vegar og notanda hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu inn á rafrænt gjafakortakerfi Smáralindar teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu. Með því að samþykkja skilmálana lýsir notandi því yfir að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni.
„Söluaðili“ er fyrirtæki sem býður vöru eða þjónustu til sölu í Smáralind.
„Kaupandi“ er einstaklingur sem kaupir gjafakort í rafrænu gjafakortakerfi. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. Þegar kaupandi er einstaklingur sem stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi eiga lög um neytendakaup nr. 48/2003 við. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við.
„Notandi“ er hver sá sem notar rafrænt gjafakortakerfi Smáralindar og á bæði við um þann sem kaupir gjafakortið og þann einstakling sem fær gjafakortið.
„Smáralind Manager“ er þjónustusíða sem ætluð er fyrir fyrirtækjanotendur til kaupa á vöru eða þjónustu tengdum rafrænum gjafakortum Smáralindar, sem og söluaðilum sem taka á móti gjafakortinu.
Smáralind selur gjafakort vegna kaupa á vöru eða þjónustu sem veitir kaupanda rétt til að fá vöru eða þjónustu afhenta frá söluaðila. Smáralind ber ekki ábyrgð á gæðum vöru eða þjónustu sem söluaðili veitir. Þegar notandi notar gjafakort í gegnum rafræna gjafakortakerfið hjá söluaðila er hlutverki Smáralindar lokið. Þá tekur gildi samningur milli notanda og söluaðila sem þar með yfirtekur skyldur Smáralindar gagnvart notanda og skulu þá lög um þjónustukaup nr. 42/2000 og lög um neytendakaup nr. 48/2003 gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir.
2. Skilyrði fyrir notkun Smáralindar smáforritsins
Notandi ábyrgist að upplýsingar sem skráðar eru í Smáralindar smáforritið séu alltaf réttar og varði hann sjálfan. Notandi samþykkir að veita ávallt nýjustu og nákvæmustu upplýsingar um sig fyrir öll kaup á gjafakortum sem gerð eru í Smáralindar smáforritinu, þ.á m. netfang og kreditkortanúmer og gildistíma þess, svo að Smáralind geti klárað viðskiptin og haft samband, sé þess þörf. Það er því alfarið á ábyrgð notanda að uppfæra upplýsingar um sig í Smáralindar smáforritinu þegar og ef þörf krefur.
Sérstök athygli er vakin á því að notanda er einungis heimilt að tengja eigin greiðslukort við lausnina. Kaupandi gjafakortsins og korthafi skal því ávallt vera sami aðili.
Þrátt fyrir ofangreint getur annað átt við þegar um fyrirtækjakort er að ræða. Í þeim tilvikum getur kaupandi tengt kreditkort lögaðila við „Smáralind Manager“. Það er hins vegar forsenda fyrir notkun á fyrirtækjakorti að forsvarsmaður lögaðila hafi sérstaklega samþykkt notkun á kortinu með virkjunarkóða. Sérstök athygli er vakin á því að einungis er hægt að kaupa rafræn gjafakort og nota fyrirtækjakort í gegnum „Smáralind Manager“ en ekki Smáralindar smáforritið.
Smáralind áskilur sér allan rétt til að hafna umsókn um notkun á „Smáralind Manager“ án þess að tilgreina ástæðu.
3. Fyrirvari
Smáralind áskilur sér rétt til breytinga á skilmálum þessum með 15 daga fyrirvara. Með áframhaldandi notkun á Smáralindar smáforritinu eftir að breytingarnar hafa tekið gildi samþykkir notandi uppfærða skilmála. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Gjafakortið gildir í öllum fyrirtækjum í Smáralind og upplýsingar um fyrirtækin er að finna á vef Smáralindar www.smaralind.is.
4. Aðgangur notanda
Aðgangur notanda að smáforriti Smáralindar skal aðeins vera notaður af honum sjálfum og er notanda með öllu óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með þriðja aðila eða á annan hátt veita þriðja aðila aðgang að persónulegum aðgangi sínum að smáforriti Smáralindar. Notandi skal tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna og ber ábyrgð á hvers kyns tjóni sem kann að hljótast af því að aðgangsupplýsingar rati til þriðja aðila, hvort sem það er með vitneskju notanda eður ei.
Notandi sem auðkennir sig með réttri auðkenningarleið er álitinn réttur eigandi viðkomandi notendaaðgangs að smáforriti Smáralindar og hefur einungis sá aðili heimild til að framkvæma aðgerðir á þeim notendaaðgangi í smáforritinu. Notandi ber ávallt fulla ábyrgð á öllum aðgerðum sem staðfestar hafa verið með framangreindum hætti í smáforriti Smáralindar.
Notanda er með öllu óheimilt að nota smáforrit Smáralindar:
– til að áreita aðra notendur smáforritsins eða þriðju aðila,
– til að ná í fjármuni eða færa fjármuni með óheiðarlegum eða saknæmum hætti (eða aðstoða aðra við að gera slíkt),
– til að framkvæma aðgerðir sem brjóta gegn skilmálum þessum, lögum og/eða stjórnsýslufyrirmælum,
– til að eiga frumkvæði að, eða hafa milligöngu um, óumbeðin samskipti við einn eða fleiri notendur smáforritsins (e. spam),
– til að falsa, eyðileggja, breyta, skemma, trufla eða á nokkurn annan hátt hafa áhrif á öryggi og öryggisþætti smáforritsins í þeim tilgangi að skoða eða misnota upplýsingar sem eru notanda óviðkomandi. Verði notandi var við veikleika í öryggisþáttum ber honum að tilkynna Smáralind um það án tafar,
– og/eða til að brjóta gegn höfunda- eða hugverkarétti Smáralindar.
Verði Smáralind vart við ofangreinda notkun á smáforritinu áskilur Smáralind sér rétt til að læsa fyrirvaralaust aðgangi viðkomandi notanda og rifta um leið samningi þessum.
5. Riftun/Uppsögn
Smáralind áskilur sér einhliða rétt til að loka fyrir aðgang notanda að smáforriti Smáralindar og öðrum lausnum ef notandi brýtur í bága við skilmála þessa eða grunur um misnotkun eða ranga notkun af einhverju tagi kemur upp.
Hafi Smáralind rift samningi við notanda vegna athæfis sem varðar við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli áskilur Smáralind sér rétt til að leita réttar síns eða kæra viðkomandi til lögreglu. Slíkur réttur er einnig til staðar vakni grunur um saknæma háttsemi jafnvel þó svo að Smáralind ákveði að rifta ekki samningi við notanda. Hið sama á við þegar Smáralind og/eða Yay er skylt að framfylgja lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Um varðveislu upplýsinga um notanda og greiðslusögu hans fer skv. Persónuverndarstefnu Smáralindar sem og Persónuverndarstefnu Yay. Ópersónugreinanleg gögn um notkun notanda í smáforritinu varðveitast áfram ótímabundið.
6. Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Til þess að uppfylla skyldur laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er nauðsynlegt að framkvæma áreiðanleikakönnun og staðfesta auðkenni viðkomandi notanda. Í ákveðnum tilvikum þurfa notendur jafnframt að fara í gegnum aukna áreiðanleikakönnun. Ef notandi neitar að afhenda slíkar upplýsingar eða veitir ekki fullnægjandi sönnun á auðkenni sínu geta Smáralind og/eða Yay ekki samþykkt notandann sem viðskiptavin. Um nánari vinnslu á upplýsingum tengdum áreiðanleikakönnun notanda vísast til Persónuverndarstefnu Yay.
7. Höfunda- og hugverkaréttur
Samningur þessi hefur ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfunda- eða hugverkarétti frá Smáralind til notanda.
Allt innihald Smáralindar smáforritsins og vefsvæðis er í eigu Smáralindar, eða eftir atvikum Yay eða annarra samstarfsaðila Smáralindar, þar með talið vörumerki, texti, hönnun, grafík, ljósmyndir, myndir og ritstýrt efni er varið höfundarétti. Allur hugbúnaður að baki rafræna gjafakortakerfis Smáralindar er í eigu Yay.
Notanda er einungis heimilt að nýta sér upplýsingar eða efni af vefsíðu Smáralindar eða Smáralindar smáforritsins til persónulegra nota í samræmi við skilmála þessa.
8. Trúnaður
Notendum er heitið fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem notendur gefa upp í tengslum við viðskiptin. Smáralind og Yay vinna með þriðja aðila sem hýsir þau gögn notenda sem Smáralind og Yay vinna með. Að auki hafa þriðju aðilar aðgang að gögnunum í þeim tilgangi að veita Smáralind og Yay þjónustu. Slíkar upplýsingar kunna því að vera afhentar þriðju aðilum sem eru vinnslu- og/eða ábyrgðaraðilar fyrir hönd Smáralindar og Yay. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum öðrum kringumstæðum, nema að beiðni notanda eða vegna lagaskyldu. Frekari upplýsingar um vinnslu þriðju aðila er að finna í Persónuverndarstefnu Smáralindar sem er aðgengileg á www.smaralind.is og Persónuverndarstefnu Yay sem er aðgengileg á www.yay.is.
9. Lög og varnarþing
Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Smáralindar og notanda skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Aðrar reglur varðandi lög og varnarþing geta átt við kortaskilmála sem notandi samþykkir sérstaklega.
10. Villur og ábyrgð
Ef um sannanleg mistök er að ræða af hendi Smáralindar verða slík mistök leiðrétt svo fljótt sem auðið er. Verði Smáralind fyrir tjóni vegna brota notanda gegn skilmálum þessum eða hvers kyns ásetnings- eða gáleysisverka notanda í tengslum við notkun á Smáralindar smáforritinu skal notandi bæta Smáralind það tjón samkvæmt almennum reglum um skaðabætur innan eða utan samninga. Undir ákvæði þetta falla einnig hvers kyns kröfur þriðja manns á hendur Smáralind vegna notkunar eða umgengni notanda við Smáralindar smáforritið á grundvelli samnings þessa. Ef rangt símanúmer eða netfang þiggjanda gjafakorts hefur verið gefið upp er ábyrgðin þess sem gaf upplýsingarnar. Ef rangur þiggjandi hefur tekið á móti inneigninni á þeim tíma og inneignin er innleyst, telst inneignin glötuð.
Smáralind ber ekki ábyrgð á að vinnsla í lausninni stöðvist tímabundið. Þá ber Smáralind enga ábyrgð á þeim vörum/þjónustu semnotandi greiðir fyrir með rafrænu gjafakorti Smáralindar, þeirri færsluhirðingu sem á sér stað í tengslum við notkun á rafrænu gjafakorti Smáralindar, nákvæmni þeirra gagna sem berast frá söluaðila, eða annarra atvika sem tengjast þjónustu þriðju aðila eða atriðum sem notandi gjafakortsins ber sjálfur ábyrgð á samkvæmt skilmálum þessum. Það sama á við um ábyrgð á tjóni sem rekja má til sambandsleysis eða rofa á fjarskiptum. Smáralind ber í engu tilviki ábyrgð á öðru en beinu tjóni notanda vegna notkunar á hugbúnaðinum sjálfum.
Í öllum tilvikum skal ábyrgð Smáralindar ehf., þ.á m. vegna hvers konar mistaka, villna, vanrækslu (svo sem í tengslum við öryggisráðstafanir), truflana, tafa, tjóns eða galla á lausninni, takmarkast við kr. 100.000, að því marki sem heimilt er á grundvelli ófrávíkjanlegra laga.
11. Óviðráðanlegar aðstæður (Force Majeure)
Hvorugur aðili skal teljast brotlegur gegn skilmálum þessum eða ábyrgur gagnvart hinum ef orsök er að rekja til atvika sem viðkomandi aðili hefur ekki á valdi sínu (óviðráðanleg atvik). Óviðráðanleg atvik í þessum skilningi eru m.a. en ekki einskorðuð við náttúruhamfarir, styrjaldir eða almennar óeirðir, aðgerðir opinberra aðila sem gera efndir ómögulegar, vinnudeilur o.þ.h. Hafi efndir verið útilokaðar af framangreindum sökum í 6 vikur eða lengur er hvorum aðila um sig heimilt að slíta samningi þessum með tilkynningu til gagnaðila sem gefin skal með 7 daga fyrirvara.
12. Breytingar á skilmálum
Smáralind áskilur sér rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði notendum þjónustunnar tilkynnt í tölvupósti um allar breytingar á viðeigandi hátt með 10 daga fyrirvara. Breytingar þessar geta varðað vörur sem eru notaðar og virkni þeirra. Noti notandi þjónustuna að 10 daga fyrirvaranum liðnum verður litið svo á að hann hafi samþykkt skilmálana í breyttri mynd. Sætti notandi sig ekki við skilmálana eftir breytingu skal hann hætta notkun þjónustunnar án tafar.
13. Persónuupplýsingar
Persónuverndarstefna Smáralindar er aðgengileg á www.smaralind.is. Í henni kemur fram hvernig Smáralind umgengst þær persónuupplýsingar sem Smáralind geymir um notanda og hvaða réttindi hann hefur varðandi upplýsingarnar.
Sömuleiðis er persónuverndarstefna Yay aðgengileg á www.yay.is. Í henni kemur fram hvernig Yay umgengst þær persónuupplýsingar sem Yay geymir um notanda og hvaða réttindi hann hefur varðandi upplýsingarnar.
14. Kortaskilmálar og vinnsla persónuupplýsinga
Sé notandi handhafi gjafakorts í smáforritinu eiga sérstakir kortaskilmálar við. Gjafakortið er útgefið af Enfuce License Services Ltd („Enfuce“) sem er fyrirtæki skráð í Finnlandi með heimilisfangið Metsänneidonkuja 12, 02130 Espoo, Finland og kennitöluna 2992502-3. Þessir kortaskilmálar verða kynntir og samþykktir sérstaklega í Smáralindar smáforritinu og eru aðgengilegir á www.smaralind.is. Varðandi vinnslu á persónuupplýsingum í tengslum við umsókn og notkun á gjafakortinu er hægt að kynna sér persónuverndarstefnu Enfuce á enfuce.com/privacy-and-data-protection.
15. Innlausn
Í ákveðnum tilvikum getur notandi óskað eftir innlausn gjafakortsins (eins og fram kemur í kortaskilmálum Enfuce) með því að hafa samband við smaralind@smaralind.is. Notanda er óheimilt að nota gjafakortið eftir að hafa óskað eftir endurgreiðslu.