Smaralind-Leikandi_laugardagur

Leik­andi laug­ar­dag­ur

26. september

Dagskrá

Það verður fullt hús af fjöri og skemmtun fyrir fjölskylduna laugardaginn 26. september milli kl. 13-16. Brúðubíllinn mætir á svæðið, Skólahreysti býður upp á spennandi áskorun, A4 verður með skemmtilega leirsmiðju og boðið verður upp á andlitsmálningu og frostpinna meðan birgðir endast.

  • Andlitsmálning

    Láttu skreyta þig

    Andlitsmálun í boði fyrir káta krakka.

    • Kl. 13-16
    • 1. hæð fyrir framan Vero Moda
  • Brúðubíllinn

    Brúðubíllinn mætir með fjörugu leiksýninguna Ys og Þys. Lilli api og fleiri skemmtilegar persónur bjóða upp á skemmtilega sýningu af tónlist, dansi, húmor og töfrum fyrir alla fjölskylduna.

    • Kl. 13
    • 1. hæð á milli Zara og Lyfju
  • Komdu að hanga með Skólahreysti

    Skólahreysti mætir á svæðið með skemmtilega hangikeppni þar sem krakkar geta spreytt sig og séð hversu lengi þau ná að hanga.

    • Kl. 13-16
    • 1. hæð fyrir framan Pennann Eymundsson
  • Leirfjör með A4

    Komdu og búðu til þitt eigið skrímsli með litríkum JOVI-leir frá A4. Hér fá krakkar að mála með leir og leyfa hugmyndafluginu að ráða för við að skapa sitt eigið einstaka skrímsli.

    • Kl. 13-16
    • 1. hæð fyrir framan A4
  • Frostpinnar í boði hússins

    Svalandi frostpinnar í boði hússins.

    • Kl. 13 og á meðan birgðir endast
    • 1. hæð fyrir framan Selected
  • Litagleði með Röggu Holm

    Ragga Holm gaf út barnaplötuna Rögguvísur fyrr á árinu. Ragga heldur áfram að fagna útgáfunni og verður með okkur í Smáralind að gefa litabækur og liti, sannkölluð litagleði.

    • Kl. 13 og á meðan birgðir endast
    • 1. hæð fyrir framan Karakter
  • Lindex gefur blöðrur og sápukúlur

    Lindex gleður unga gesti með blöðrum og sápukúlum.

    • Kl. 13 og á meðan birgðir endast
    • Lindex á 1. hæð við hliðina á Hagkaup