
Jólagleði
Laugardaginn 21. nóvember
Það verður sannkölluð jólagleði á laugardaginn 21. nóvember í Smáralind þegar ljósin á jólatrénu verða tendruð kl. 14. Af því tilefni verður boðið upp á skemmtilega dagskrá, tilvalið tækifæri til að mæta með alla fjölskylduna og njóta notalegrar stundar saman.
Dagskrá

Ljósin á jólatrénu tendruð
Solla Stirða og Íþróttaálfurinn tendra ljósin á jólatrénu og skemmta gestum með söng og gleði úr sýningunni Jól í Latabæ.
- Kl. 14
- 1. hæð á sviði á milli Zara og Lyfju

Skólakór Smáraskóla
Skólakór Smáraskóla flytur falleg jólalög og fyllir Smáralind af ljúfum tónum og hátíðlegri jólastemningu.
- Kl. 14:30
- 1. hæð á sviði á milli Zara og Lyfju

Jólaálfar gefa mandarínur
Hressir jólaálfar verða á ferðinni um Smáralind og gleðja yngstu gestina með mandarínum og jólagleði.
- Kl. 14-16 eða á meðan birgðir endast
- Hér og þar um húsið

Ristaðar jólamöndlur
Góður ilmur af nýristuðum möndlum fyllir loftið þegar Möndlubarinn mætir á svæðið og ristar gómsætar möndlur í boði hússins.
- Kl. 14-16
- 1. hæð hjá H&M Home

Jóladjass
Djasstríóið Klappar leikur ljúfa jólatóna og skapar notalega hátíðarstemningu með fallegum jólalögum.
- Kl. 15-17
- 1. hæð fyrir framan Søstrene Grene