
Hóparými
Taktu frá borð fyrir hópinn þinn
Garðurinn tekur vel á móti hópum og býður upp á hóparými fyrir 10–30 manns.
Hóparýmin eru þrjú og taka 10 sitjandi gesti hvert, hægt er að opna á milli rýmanna og þá eru sæti fyrir allt að 30 manns. Svæðið má hafa opið eða lokað með tjöldum, allt eftir því hvort óskað er eftir meiri nálægð við lífið í mathöllinni eða fullkomnu næði fyrir hópinn.
Til að bóka, sendu tölvupóst á gardurinn@smaralind.is með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara.
Athugið að bókun telst ekki staðfest fyrr en staðfesting hefur borist í tölvupósti.