Út­gáfu­p­artý í Penn­an­um Ey­munds­son 7. nóv­em­ber

Vilhelm Anton Jónsson og Gunnar Helgason senda báðir frá sér æsispennandi ævintýrabækur í haust. Þess vegna hafa þeir sameinað krafta sína í eitt allsherjar útgáfuhóf!

Höfundarnir kynna bækurnar sínar og sprella eins og þeim einum er lagið laugardaginn, 7. nóvember kl. 13 í Pennanum Eymundsson. Í boði verða leikir, áritanir og léttar veitingar. Einnig verður happdrætti með skemmtilegum vinningum, svo það borgar sig að mæta tímanlega og næla sér í miða. Bækurnar verða auk þess á alveg sérstöku útgáfutilboði.

Strákurinn með sægrænu augun
Tóbías Mar hefur alist upp um borð í sjóræningjaskipinu Söng sírenunnar og skipskötturinn Salt fylgir honum hvert fótmál. Dag einn veita herskip keisaraveldisins Sírenunni grimmilega eftirför. Þá kemst Tóbías að því að í honum búa magnaðir kraftar sem tengjast hafinu. Sæskrímsli, töfrar og sjóræningjar!
Þetta er fyrsta skáldsaga Villa naglbíts, fjöllistamannsins sem skrifaði hinar geysivinsælu Vísindabækur Villa. Fífa Finnsdóttir myndskreytir bókina, en hún hefur um árabil hannað persónur fyrir tölvuleiki.

Sturla – Tvíburaveiðar
Regína ólst upp hjá hertoganum í Normandí en Litlavin hjá fátækum vinnuhjúum á Íslandi. Á fjórtán ára afmælisdaginn birtist dularfullt fólk hjá þeim báðum. Það er með drekapeð í fórum sínum og ætlar að – haltu þér fast – veiða þær! Talandi hani, brjálaður búálfur og sætur hvolpur gera allt sem þeir geta til að halda þeim á lífi. En hver í veröldinni er þessi Sturla?
Verðlaunahöfundurinn Gunnar Helgason skrifar af leiftrandi frásagnargleði og Sigmundur Breiðfjörð myndskreytir bókina.

Sjáumst í Pennanum Eymundsson.