Ung­ir frum­kvöðlar

Dagana 17. og 18. apríl verður Vörumessa Ungra frumkvöðla haldin í Smáralind. Á Vörumessunni munu 620 nemendur frá 18 framhaldskólum kynna og selja nýsköpun sína.

Ungir frumkvöðlar í Smáralind

Um ræðir 150 fyrirtæki sem stofnuð hafa verið af 620 nemendum úr 18 mismunandi framhaldsskólum um land allt. En þeir skólar sem taka þátt eru eftirfarandi: Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskóli Borgarfjarðar, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn á Ísafirði, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn við Sund, Menntaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Verslunarskóli Íslands.

Dagskrá Vörumessu

Föstudagur 17. apríl

Kl. 11:00 - 18:00 Vörumessa Ungra frumkvöðla - fyrri hluti

Kl. 12:00 - 12:30 Formleg setning Vörumessunnar

kL. 12:30 - 15:30 Dómnefnd metur hugmyndir

Laugardagur 18. apríl

Kl. 11:00 - 18:00 Vörumessa Ungra frumkvöðla - seinni hluti

Kl. 13:30 - 16:30 Dómnefnd metur hugmyndir

Kl. 17:00 Ragnhildur Bolladóttir, skrifstofu- og teymisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu veitir viðurkenningar fyrir frumlegasta sölubásinn og öflugasta sölustarfið.

Kl. 18:00 Formleg lok Vörumessunnar