Komdu og próf­aðu Und­ur vís­ind­anna

Gagnvirk sýning fyrir forvitna huga

Undur vísindanna

Heilabrot, þrautir og tilraunir

Sýningin Undur vísindanna býður upp á ógleymanlega upplifun þar sem vísindi og skemmtun mætast á einstakan hátt!

Vísindin eru alls staðar í kringum okkur, í ljósi, hreyfingu, hljóði og jafnvel hversdagslegum hlutum. En hversu oft stoppum við til að velta fyrir okkur hvernig hlutirnir virka í raun og veru? Á þessari gagnvirku sýningu færðu tækifæri til að stíga inn í heim þar sem þú mátt prófa, snerta og uppgötva. Hér er tækifæri til þess að kynnast skemmtilegum og óvæntum tilraunum sem sýna á lifandi hátt hvernig náttúrulögmálin móta heiminn okkar og hversu heillandi vísindin geta verið þegar við fáum að upplifa þau með eigin augum.

Sýningin er full af tilraunum og sjónrænum þrautum sem heilla bæði börn og fullorðna. Sjáðu sjálfan þig í brenglandi spegli, prófaðu hvernig óvenjulegir bogar breyta stærðarskynjun og upplifðu frádræga litablöndu. Þetta er fullkomin blanda af fróðleik og fjöri fyrir alla aldurshópa.

Sýningin kemur frá Þýskalandi og er sérstaklega hönnuð fyrir verslunarmiðstöðvar. Undir slagorðinu „Science on Tour“ fer sýningin á milli landa í þeim tilgangi að sem flestir fái tækifæri til að prófa og kynnast heillandi fyrirbærum úr heimi vísindanna. Þetta er sýning sem er fræðandi á sama tíma og hún er skemmtileg afþreying fyrir fólk á öllum aldri.

Sýningin stendur yfir til og með þriðjudagsins 3. mars og er öllum opin. Hún er staðsett á tveimur stöðum á 1. hæð göngugötu Smáralindar.