12. nóvember 2026
Stóri Láru og Ljónsa dagurinn 14. nóvember

Laugardaginn 14. nóvember kl. 13 verður Stóri Láru og Ljónsa dagurinn haldinn í Smáralind. Birgitta Haukdal og Ljónsi mæta fyrir framan Hagkaup og skemmta kátum krökkum með söng og gleði. Með þeim í för verður jólaálfurinn Saga Júlía ásamt sérstökum leynigesti.
Boðið verður upp á Kókómjólk, Stjörnupopp, kandífloss og skemmtilegar gjafir á meðan birgðir endast.
Einnig mun Birgitta spjalla við gesti og árita nýjustu bækurnar sínar, Lára fer á skauta og Atli fer til tannlæknis, sem verða á sérstöku kynningarverði í tilefni dagsins.
Sjáumst í Smáralind!