Stóri Láru og Ljónsa dagurinn
Laugardaginn 8. nóvember kl. 14 verður sannkallaður hátíðardagur fyrir alla aðdáendur Láru og Ljónsa þegar Stóri Láru og Ljónsa dagurinn fer fram fyrir framan Hagkaup í Smáralind. Kandífloss, popp og skemtileg stemning fyrir alla fjölskylduna.

Laugardaginn 8. nóvember kl. 14 verður sannkallaður hátíðardagur fyrir alla aðdáendur Láru og Ljónsa þegar Stóri Láru og Ljónsa dagurinn fer fram fyrir framan Hagkaup í Smáralind.
Á staðnum verður líf og fjör, þar sem hægt verður að nálgast nýjustu Lárubækurnar á sérstöku kynningarverði.
Dagskráin hefst kl. 14 þegar Birgitta Haukdal og Saga Júlía, dóttir hennar taka á móti gestum og syngja nokkur vinsæl lög sem skapa hlýlega og skemmtilega stemningu.
Klukkan 14:30 mætir Ljónsi á svæðið og hittir unga aðdáendur sína.
Boðið verður upp á veitingar á meðan birgðir endast, tónlist og notalega samveru. Birgitta Haukdal verður á staðnum til að árita bækur og spjalla við gesti.
Þetta er skemmtileg stund sem enginn sannur Láru- og Ljónsa aðdáandi ætti að láta framhjá sér fara.
Hlökkum til að sjá ykkur í Smáralind!