Stærsta Levi´s verslun landsins hefur opnað í Smáralind

Verslunin Levi´s hefur verið í Smáralind í 23 ár og nú hafa verið tekin stór og spennandi skref í þeirri sögu með opnun stærstu Levi´s verslunar landsins í Smáralind. Með breytingunum sameinast sagan, stíllinn og framtíðin í öflugri verslun og í takt við vörumerki sem hefur alltaf náð að halda sér í fremstu röð, kynslóð eftir kynslóð.
Verslunin er staðsett á sama stað og áður á 1. hæð Smáralindar og er nú orðin stærri og með enn breiðara vöruúrval. Í tilefni opnunarinnar og 23 ára afmælis verslunarinnar býður verslunin 23% afslátt af öllum vörum dagana 3. - 7. júní.
Nýtt og spennandi
Við spurðum Lilju Bjarnadóttur, eiganda Levi´s á Íslandi, hvað væri það nýjasta og vinsælasta hjá Levi´s um þessar mundir. „Það nýjasta hjá okkur er sniðið 501 Loose, sem er að slá í gegn um þessar mundir. Það virðist vera akkúrat það sem fólk er að leita að í dag, afslappað snið með klassískum 501-grunni. Þetta eru buxur sem höfða til allra kynja og hafa fengið frábærar viðtökur. Þá hafa XL Straight-buxurnar einnig verið vinsælar í vetur og halda áfram inn í vor og sumar. Þetta eru mjög þægilegar, víðar buxur sem margir finna sig vel í, og það er sérstaklega gott að þær koma líka í 35 sídd, sem hentar vel fyrir hávaxið fólk. Auk buxnasniðanna er líka mikil þróun í skyrtum og bolum hjá Levi’s um þessar mundir. Þar er áhersla á flott snið, góð efni og almennt meiri fjölbreytni. Það er því klárlega nóg spennandi í gangi og ég mæli með að fólk kíki við og skoði úrvalið í nýju versluninni í Smáralind,“ segir Lilja spennt fyrir nýjum kafla hjá Levi´s á Íslandi.
Kíktu í nýja og stórglæsilega verslun Levi´s í Smáralind