Smáralind er orðin bragðmeiri
Garðurinn, ný og glæsileg mathöll, hefur opnað í Smáralind. Garðurinn er einn metnaðarfyllsti áfanginn í þróun Smáralindar til þessa og markar nýtt tímabil í upplifun gesta. Mathöllin hefur að geyma fjölbreytt úrval veitingastaða og er umgjörðin allt önnur en áður hefur þekkst í verslunarmiðstöðvum á Íslandi.
Í Garðinum eru þrettán veitingastaðir sem bjóða allt frá fljótlegum og aðgengilegum mat til hágæða matarupplifunar og lengri opnunartíma. Staðirnir eru: Gaeta Gelato, Sbarro, Serrano, Subway, 5 spice by XO, Topwings, Neó pizza, Yuzu, Abuela Lola, Funky Bhangra, Djúsí sushi, La Trattoria og Hjá Höllu.
Svæðið sjálft er hannað af Basalt Arkitektum og rúmar tæplega 600 gesti. Áhersla var lögð á að skapa huggulegt veitingasvæði þar sem fólki líður vel og getur notið matar og samveru í fallegu umhverfi. Hluti af mathöllinni er í nýrri viðbyggingu við Smáralind, einskonar garðskála, en stækkunin nemur tæplega 400 m2.
Garðurinn er staður þar sem fólk hittist, slappar af og hefur gaman en rýmið einkennist af ríkulegum gróðri og afslappaðri stemningu. Þá tengist nafnið líka sögu Smáralindar enda er mathöllin staðsett á því svæði sem áður gekk undir nafninu Vetrargarðurinn.
Það voru þau Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, og Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, sem opnuðu Garðinn fyrir gestum Smáralindar við mikinn fögnuð viðstaddra.
Í Garðinum verður hugguleg stemning með reglulegum uppákomum á kvöldin. Söng- og leikkonan Elín Hall verður með fyrstu tónleikana í Garðinum næstkomandi sunnudagskvöld kl. 20.
Verið velkomin í Garðinn!
