Smára­l­ind end­ur­vott­uð með BREE­AM In-Use „Very Good"

Smáralind - BREEAM In-Use vottun

Smáralind hefur verið endurvottuð samkvæmt BREEAM In-Use umhverfisvottunarkerfinu með einkunnina "Very Good". Smáralind var fyrsta byggingin á Íslandi til að hljóta BREEAM In-Use vottun árið 2019 og staðfestir endurvottunin áframhaldandi áherslu á ábyrgan og sjálfbæran rekstur.

Í tengslum við endurvottunina hafa verið gerðar ýmsar umbætur á rekstri byggingarinnar. Þar á meðal var vatnssparandi búnaður settur upp í Garðinum mathöll. Þá hafa verið unnin fjölmörg möt og greiningar fyrir bygginguna, meðal annars orkuúttekt, uppfærð viðbragðs- og rýmingaráætlun, loftslagsáhættumat, flóðaáhættumat, öryggisáhættumat og vistfræðiskýrsla.

Endurvottunin er óháð staðfesting á því að Smáralind sé rekin í samræmi við alþjóðlega viðurkennda staðla um umhverfismál, öryggi og rekstur. Hún undirstrikar markvissa nálgun í nýtingu auðlinda, öryggismálum og áhættustýringu. Með því er lagður grunnur að ábyrgum og stöðugum rekstri sem styður við fjölbreytta notkun hússins og þá upplifun sem þar á sér stað dag hvern

Smáralind BREEAM In-Use vottun
Smáralind er fyrsta byggingin á Íslandi til að hljóta BREAAM In-Use vottun.
Smáralind BREEAM In-Use endurvottun
Endurvottunin er óháð staðfesting á því að Smáralind sé rekin í samræmi við alþjóððlega viðurkennda staðla um umhverfismál, öryggi og rekstur.