Takk fyr­ir að fagna með okk­ur!

Sýning á því hvernig tíska dagsins í dag er undir áhrifum aldamótatískunnar

Smáralind fagnaði 25 ára afmæli dagana 10. og 11. október

Afmælistilboð, kaka og aldamótastemning settu svip sinn á hátíðina þar sem við snerum klukkunni aftur til ársins 2001.

Smáralind opnaði dyr sínar þann 10.10.2001 klukkan 10.10. Þá voru liðin rúm þrjú ár frá fyrstu skóflustungunni, sem tekin var 2. júlí 1998. Það voru svo tvö börn úr nágrenninu, Smári og Linda, sem fengu það skemmtilega hlutverk að opna húsið formlega.

Í dag er Smáralind stærsta verslunarmiðstöð Íslands, rúmlega 62.000 fermetrar að stærð, með um 100 verslanir, veitingastaði og þjónustuaðila. Á þessum 25 árum hefur húsið þróast í takt við breyttar venjur og væntingar gesta, þar sem verslun, veitingar og afþreying fléttast sífellt meira saman.

Uppbyggingin heldur áfram. Á tæpu ári hafa um tuttugu nýjar verslanir og veitingastaðir opnað, þar á meðal mathöllin Garðurinn. Smárabíó hefur fengið mikla upplyftingu, ný setusvæði voru sett upp fyrr á árinu og glæsileg menningarmiðstöð Kópavogs fer senn að rísa.

Þótt við horfum fram á veginn gefum við okkur líka tíma til að rifja upp söguna. Á göngugötunni má nú sjá tísku og vinsælar vörur frá árinu 2001, stíga inn í sérstakt 2001 herbergi og skoða ljósmyndir og myndbönd frá upphafsárunum. Aldamótatónlistin sér svo um réttu stemninguna.

Sýningin stendur til 28. október, það er því enn hægt að kíkja í heimsókn til ársins 2001!

  • Smáralind 10. október 2026
  • Myndir og myndbönd frá upphafsárum Smáralindar á risa skjá
  • 2001 herbergi til sýnis í Smáralind
  • Vinsælar vörur frá 2001 til sýnis á 25 ára afmæli Smáralindar
  • Vinsælustu úrin frá Meba frá árinu 2001 til sýnis í Smáralind
  • Jónsi úr hljómsveitinni Í svörtum fötum söng í Garðinum mathöll í tilefni 25 ára afmæli Smáralindar
  • Sunneva Einars, Adam Helgason og Birta Líf á 25 ára afmæli Smáralindar
  • Smáralind er síðan 2001

Við þökkum samfylgdina síðustu 25 ár og hlökkum til næsta kafla!