4. desember 2025
Pakkajól Smáralindar í fullum gangi

Jólagjafasöfnun Smáralindar, Pakkajól er í fullum gangi og stendur yfir fram að jólum. Gefðu eina auka jólagjöf og settu undir jólatréð í Smáralind og láttu þannig gott af þér leiða fyrir jólin. Gjafirnar fá börn á Íslandi á aldrinum 0-18 ára sem búa við bág kjör. Söfnunin er í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands.
Hjálpumst að við að veita öllum gleðileg jól!