21. nóvember 2026
Pakkajól eru hafin

Jólagjafasöfnun Smáralindar, Pakkajól er hafin og stendur yfir fram að jólum. Gefðu eina auka jólagjöf og settu undir jólatréð í Smáralind og láttu þannig gott af þér leiða fyrir jólin. Gjafirnar fá börn á Íslandi á aldrinum 0-18 ára sem búa við bág kjör. Söfnunin er unnin í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd.
Hjálpumst að við að veita öllum gleðileg jól!