Öskudagur í Smáralind

Við tökum vel á móti kátum krökkum í Smáralind að syngja fyrir nammi á öskudaginn. Hægt verður að ganga á milli verslana og syngja fyrir starfsfólk á milli klukkan 12-15 eða á meðan birgðir endast.
Fyrir þau sem vilja eiga skemmtilega minningu frá deginum verður myndabás á 1. hæð á móti Selected, þar sem hægt verður að smella mynd af sér í búningnum.
Við hvetjum krakka til þess að mæta í búning, taka lagið og njóta öskudagsins í Smáralind.
Gagnvirka sýningin Undur vísindanna stendur enn uppi tveimur stöðum á 1. hæð Smáralindar. Ógleymanleg upplifun þar sem vísindi og skemmtun mætast á einstakan hátt. Sýningin er full af tilraunum og sjónrænum þrautum sem heilla bæði börn og fullorðna. Sjáðu sjálfan þig í brenglandi spegli, prófaðu hvernig óvenjulegir bogar breyta stærðarskynjun og upplifðu frádræga litablöndu. Þetta er fullkomin blanda af fróðleik og fjöri fyrir alla aldurshópa.
Sjáumst í Smáralind á öskudaginn!