Nýtt fyr­ir­komu­lag á bíla­stæð­um við Smára­l­ind inn­leitt í haust

Smáralind

Frítt verður að leggja í fjórar klukkustundir en gjald innheimt eftir það. Tilgangurinn er að bæta aðgengi viðskiptavina.

Í haust stendur til að innleiða nýtt fyrirkomulag á bílastæðum við Smáralind með það að markmiði að tryggja viðskiptavinum betra aðgengi að bílastæðum við húsið. Frítt verður að leggja við Smáralind í fjórar klukkustundir, en eftir þann tíma verður innheimt bílastæðagjald sem nemur 450 kr. á klukkustund.

Aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega á síðustu árum. Stæðin við bygginguna hafa í vaxandi mæli verið nýtt til langtímadvalar, af fólki sem starfar eða býr í nágrenninu, með geymslu ökutækja sem ekki tengjast heimsóknum í Smáralind. Þetta hefur leitt til þess að viðskiptavinir hafa átt erfiðara með að finna laus stæði á hentugum stöðum við húsið.

Til að tryggja það að viðskiptavinir Smáralindar hafi áfram greiðan aðgang að bílastæðunum við húsið hefur verið ákveðið að fara í þessar breytingar og taka upp gjald fyrir langtímanotkun stæðanna. Breytingarnar munu taka gildi í haust.

„Allir munu áfram geta lagt í fjórar klukkustundir við Smáralind án þess að greiða neitt fyrir það". Þeir sem helst munu finna fyrir breytingunum eru þeir sem hafa verið að geyma bíla og önnur farartæki þarna um langa hríð. Þeir aðilar munu þurfa að finna aðrar leiðir. Við viljum tryggja að viðskiptavinir Smáralindar geti gengið að því sem vísu að fá gott bílastæði þegar þeir koma í húsið. Langflestar heimsóknir fólks eru innan við fjögurra klukkustunda langar og því ætti breytingin ekki hafa áhrif á viðskiptavini Smáralindar,“ segir Baldur M. Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum. „Með þessu fyrirkomulagi getum við betur tryggt að stæðin séu tiltæk þegar fólk kemur til að versla, borða eða sækja sér þjónustu í húsinu.“

Þá mun starfsfólk í Smáralind áfram geta lagt frítt við húsið á vinnutíma, en gert er ráð fyrir sérstökum starfsmannasvæðum sem verða staðsett fjær inngöngum og vinsælustu stæðunum.

Notast verður við nýjustu tækni í myndgreiningu og greiðslulausnum til að framfylgja breytingunum og verður kerfið gert eins þægilegt og mögulegt er fyrir viðskiptavini. 

Innleiðing kerfisins hefst í haust og verður framkvæmd í áföngum. Rekstur og þjónusta kerfisins verður í höndum Green Parking.