Aðsókn eykst um 24% í Smáralind

Aðsókn í Smáralind heldur áfram að aukast og var Miðnæturopnun 3. júní sú stærsta sem haldin hefur verið í júnímánuði frá upphafi.
Góð aðsókn hefur einkennt árið hingað til. Nýliðinn maímánuður var 32% stærri en maí í fyrra og það sem af er ári hefur aðsókn aukist um 24% miðað við sama tímabil árið 2025.
Á síðustu sjö mánuðum hafa yfir 20 nýjar verslanir og veitingastaðir hafið starfsemi í Smáralind. Miðvikudaginn 3. júní opnaði Levi's endurnýjaða og stækkaða verslun sína, en fyrirtækið hefur verið með starfsemi í Smáralind í 23 ár. Sama dag opnaði Elko glæsilega verslun í nýju verslunarrými við Garðinn. Á næstu dögum munu Lindex og Epli einnig opna nýjar verslanir í húsinu.
Smáralind fagnar 25 ára afmæli á þessu ári og framundan eru fjölmörg verkefni, nýjungar og viðburðir. Þá munu fleiri nýir rekstraraðilar hefja starfsemi í húsinu á næstu misserum.
Við göngum afar bjartsýn inn í sumarið og afmælisárið. Þessi árangur er fyrst og fremst til marks um sterkt samstarf við rekstraraðila okkar og þann kraft sem ríkir í húsinu. Við hlökkum til að halda áfram að þróa Smáralind sem áfangastað fyrir verslun, veitingar og afþreyingu