MANGO hefur opnað í Smáralind

Mango, eitt fremsta alþjóðlega tískuvörumerki heims heldur áfram stefnu sinni með alþjóðlegri sókn og kemur inn á íslenskan markað með nýja verslun í Smáralind.
Nýja verslunin er staðsett á 2. hæð og spannar yfir 450 fermetra og þar sem boðið verður uppá kvenlínu Mango auk fylgihluta. Verslunin verður byggð upp með „New Med“ hönnunarhugmyndafræðinni sem er innblásið af Miðjarðarhafinu og endurspeglar anda og ferskleika vörumerkisins. Sjálfbærni og samspil við arkitektúr eru í fyrirrúmi í þessari hönnun sem líkist helst heimili við Miðjarðarhafið með ólíkum rýmum þar sem hlýir tónar og hlutlausir litir ráða ríkjum, í bland við hefðbundið handverk og sjálfbær, náttúruleg efni.
„Að fá Mango inn styrkir stöðu Smáralindar sem leiðandi tískuáfangastað landsins. Hönnun og gæði merkisins sem sækir innblástur til Miðjarðarhafsins falla frábærlega að væntingum viðskiptavina okkar og þessi opnun eykur bæði fjölbreytni og upplifun sem boðið er uppá. Við erum himinlifandi yfir því að Mango hafi valið Smáralind sem áfangastað fyrstu verslunar sinnar hér á Íslandi,“ segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum.
Þessi opnun er hluti af 4E 2024–2026 stefnu Mango, sem miðar að því að efla sérstöðu vöruframboðs fyrirtækisins, skuldbindingu þess til nýsköpunar og sjálfbærni og að auka sölu með markvissri fjölgun verslana og vexti allra vörulína og dreifileiða.
Mango er eitt stærsta alþjóðlega tískufyrirtæki heims. Félagið er þekkt fyrir hönnun og sköpun sem eru í hjarta viðskiptalíkansins og stefnu sem byggir á stöðugri nýsköpun, tryggð við sjálfbærni og heildstæðu vistkerfi dreifileiða og samstarfsaðila. Fyrirtækið var stofnað í Barcelona árið 1984 og lauk rekstrarárinu 2024 með yfir 3,3 milljarða evra veltu. Um þriðjungur viðskipta á sér stað í gegnum netið og félagið er með starfsemi á meira en 120 mörkuðum. Nánari upplýsingar á mangofashiongroup.com.
Umboðsaðilar Mango á Íslandi eru þau Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir en þau eru íslenskir frumkvöðlar á sviði verslunar og m.a. umboðsaðilar fyrir Gina Tricot á Íslandi. Í vörumerkjasafni þeirra eru fjölmargar verslanir sem opnað hafa með pompi og prakt við allar stærstu verslunarmiðstöðvar landsins og telur um 20 verslanir víðs vegar um landið.