11. maí 2026
Takk fyrir komuna á lúxusbílasýninguna

Lúxusbílasýningin í Smáralind um helgina heppnaðist afar vel og viljum við þakka öllum þeim sem lögðu leið sína í Smáralind dagana 9. og 10. maí til að upplifa þessa glæsilegu sýningu.
Gestir fengu tækifæri til að skoða úrval lúxusbíla frá framleiðendum á borð við Audi, Mercedes-Benz, BMW, Land Rover og Porsche, en sýningin vakti mikla athygli meðal bílaáhugafólks jafnt sem fjölskyldna og annarra gesta.
Frábær stemning myndaðist í Smáralind þar sem gestir nutu þess að skoða nýjustu gerðirnar í návígi, kynna sér tæknina á bak við bílana og ræða við sérfræðinga frá bílaumboðunum.
Við þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur, það er alltaf gaman að geta boðið upp á fjölbreytta og spennandi viðburði fyrir gesti Smáralindar.