Laufeyland í Smáralind

Í tilefni tónleika Laufeyjar í Kórnum dagana 14. og 15. mars hefur "Laufeyland" opnað í Smáralind.
Opnunartími "Laufeyland" verður alla daga frá kl. 12-20 fram að seinni tónleikunum þann 15. mars.
Dagskrá
Alla daga
Einstakur Laufeyjarvarningur til sölu.
Gjafaleikir.
Leikir og spil.
Þriðjudagur 10. mars
12:00: Opnun.
14:00 – 16:00: Andlitsmálning fyrir börn.
Miðvikudagur 11. mars
16:00: Danskeppni með REC Media.
Fimmtudagur 12. mars
19:00: Elín Hall á sviði.
Föstudagur 13. mars
19:00: Jazzband á sviði.
Myndakassi.
Gerðu þitt eigið Laufeyjar-armband.
Laugardagur 14. mars
Myndakassi.
Gerðu þitt eigið Laufeyjar-armband.
Sunnudagur 15. mars
Myndakassi.
Gerðu þitt eigið Laufeyjar-armband.
Fríar strætóferðir fyrir tónleikagesti frá Smáralind
Tónleikarnir hefjast kl. 20 þann 14. og 15. mars og boðið verður upp á fríar strætóferðir frá Smáralind og upp í Kór þessa daga frá kl. 17:30 og þar til allir eru komnir til baka eftir tónleikana sem áætlað er að ljúki kl. 22:45.
Hamingustund í Garðinum
Hamingjustund í Garðinum er alla daga kl. 15-17 og á sumum stöðum til 18, það er því tilvalið að koma fyrir tónleikana í dýrindis mat og drykk í góðum félagsskap og njóta í notalegu umhverfi.
Heppinn viðskiptavinur fær gullmiða á tónleikana
Til að auka enn á gleðina stendur Smáralind fyrir leik þar sem viðskiptavinir eiga möguleika á að vinna Gullmiða á tónleikana, pakki að verðmæti hátt í 80.000 kr. ásamt gjafakortum í Smáralind og Laufey tengdum vinningum. Viðskiptavinir sem versla fyrir 5.000 kr. eða meira í verslunum Smáralindar fá þátttökuseðil hjá starfsfólki verslana. Seðillinn er síðan fylltur út og settur í sérstakan happdrættiskassa sem er við þjónustuborðið á 2. hæð.
Það er ljóst að Laufey stemningin verður allsráðandi í Smáralind dagana fyrir tónleika Laufeyjar og kjörið tækifæri fyrir tónleikagesti og alla aðdáendur Laufeyjar að koma við, taka þátt í skemmtilegum uppákomum og njóta gleðinnar.