Kappahl opnar á laug­ar­dag­inn kl. 12!

Kappahl á Íslandi

Kappahl opnar fyrstu verslun sína á Íslandi í Smáralind.

Verslunin er staðsett þar sem Lindex var áður og mun bjóða upp á breitt úrval af tískufatnaði og tímalausum flíkum fyrir alla fjölskylduna. 

Með opnun Kappahl á Íslandi verður í fyrsta sinn boðið upp á heildarlínu vörumerkisins fyrir konur, karla og börn, auk hins vinsæla barnalífsstílsmerkis Newbie, sem nýtur mikilla vinsælda víða um Norðurlönd og í Bretlandi.

„Þetta eru sérstök tímamót fyrir okkur þar sem þetta er fyrsta sérleyfissamstarf Kappahl Group á heimsvísu,“ segja Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, sérleyfishafar Kappahl og Newbie á Íslandi.
„Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því ákvörðunin var tekin um þetta samstarf. Stór áfangi náðist í vikunni sem leið þegar fyrstu vörusendingarnar komu í hús, því þá varð ljóst að hægt væri að tilkynna opinberlega um opnun verslananna. Við hlökkum til að bjóða velkomna heim í Kappahl okkar frábæru viðskiptavini til að njóta alls þess sem áður var en að auki framúrskarandi fatnað fyrir karlþjóðina en verslanir okkar eru nú sannarlega fyrir alla fjölskylduna.“

Viðskiptavinir geta fylgst með framvindunni, fréttum af opnuninni og sérstökum opnunartilboðum í gegnum Kappahl klúbbinn á www.kappahl.is.

Um Kappahl Group

Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 og rekur í dag 345 verslanir í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Bretlandi. Fyrirtækið hefur fest sig í sessi sem eitt af leiðandi tískuvörumerkjum Skandinavíu, með ríka áherslu á sjálfbærni, sígildar grunnflíkur, undirfatnað og tískufatnað fyrir konur, karla og börn.

Um Newbie

Newbie er barna- og lífsstílsvörumerki Kappahl, elskað víðs vegar um Norðurlönd og í Bretlandi fyrir mjúk lífræn efni, rómantísk skandinavísk mynstur og tímalausa hönnun sem ætluð er að endast og ganga milli kynslóða. Newbie verslanir eru 25 en vörumerkið er einnig selt í völdum Kappahl-verslunum sem og á netinu.

Um LKA19 ehf 

LKA19 ehf. er íslenskur smásöluaðili sem er hluti fyrirtækjasamstæðu sem sérhæfir sig í rekstri leiðandi alþjóðlegra tísku- og lífsstílsvörumerkja, þar á meðal Gina Tricot og Mango. Með ríka áherslu á framúrskarandi upplifun viðskiptavina, háa staðla í verslunarrekstri og nýstárleg vörumerki hafa Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir ásamt afar reynslumiklu teymi yfir 160 starfsmanna gegnt lykilhlutverki í mótun tískuverslunar á Íslandi.