Ís­lensk tón­list með k100 í Garð­in­um mat­höll

Njóttu lifandi tónlistar í Garðinum

íslensk tónlist í Garðinum

Njóttu notalegrar kvöldstundar með lifandi íslenskri tónlist í Garðinum mathöll í samstarfi við K100, þar sem ungt og efnilegt tónlistarfólk stígur á svið í sumar.

Fimmtudaginn 23. júlí kl. 20:30 kemur Silja Rós fram og flytur frumsamin lög í hlýrri og afslappaðri stemningu.

Silja Rós gaf nýverið út sína þriðju plötu, …letters from my past, sem hún fagnaði með útgáfutónleikum í Hörpu. Tónlist hennar einkennist af hlýjum neo-soul hljóðheimi, einlægum textum og áhrifum frá listamönnum á borð við Jacob Collier, Olivia Dean og Daniel Caesar.

Njóttu kvöldsins í Garðinum mathöll yfir góðum veitingum og frábærri tónlist.