Hvað á Menningarmiðstöðin að heita?

Kópavogsbær hefur efnt til nafnasamkeppni um heiti á nýrri Menningarmiðstöð Kópavogs í Smáralind. Tekið er við innsendum tillögum til 1.júní næstkomandi. Dómnefnd fer yfir tillögur og verður höfundi vinningstillögu veitt glæsileg verðlaun.
Í Menningarmiðstöðinni verður lögð sérstök áhersla á bókasafnsþjónustu í hlýlegu og opnu rými. Menningarmiðstöðin mun einnig hýsa fjölbreytta viðburði, fræðslu og miðlun fyrir alla aldurshópa. Hún verður vettvangur fyrir lestur, sköpun, samtal og samveru. Miðstöðin verður hluti af öflugri heild menningarstofnana Kópavogs.
Verkefnið er þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima fasteignafélag. Menningarmiðstöðin verður til húsa austast í Smáralind í 900 fermetra rými. BASALT arkitektar munu hanna Menningarmiðstöðina og hafa að leiðarljósi fjölbreytta notkun hennar.
Taktu þátt og sendu inn þína nafnatillögu hér: https://eldri.kopavogur.is/is/mannlif/menning-i-kopavogi/menningarmidstod
Ný og glæsileg Menningarmiðstöð Kópavogs opnar vorið 2027