13. nóvember 2025
Húrra hefur opnað í Smáralind

Nú á dögunum opnaði tískuvöruverslunin Húrra í Smáralind. Húrra sameinar götustíl og nútímalega hönnun. Í versluninni má finna vandlega valið úrval af fatnaði, skóm og fylgihlutum frá merkjum eins og Stone Island, Carhartt WIP, MKI Miyuki Zoku, Opéra SPORT, Høsbjerg, Sporty & Rich, Drôle de Monsieur, Norse Projects, Libertine Libertine og Han Kjøbenhavn. Þetta er aðeins brot af því sem er boðið upp á.
Húrra leggur áherslu á tíma lausan stíl með skandinavísku ívafi. Andrúmsloftið er afslappað, þjónustan persónuleg og vörurnar valdar af metnaði fyrir gæðum og fallegri hönnun.
Verslunin er staðsett á 2. hæð á milli Air og Galleri 17. Kíktu við og upplifðu nýja og glæsilega Húrra.

