ELKO opnar í Smára­l­ind

Í tilefni opnunarinnar verða sérstök opnunartilboð frá 3.–7. júní með allt að 50% afslætti af völdum vörum.

elko smaralind

ELKO opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind miðvikudaginn 3. júní. Í versluninni verður boðið upp á sérvalið úrval smærri raftækja, þar á meðal síma, spjaldtölvur, fartölvur, snyrti- og heilsuvörur, smærri heimilistæki og gjafavöru.

Viðskiptavinir geta einnig fengið skjávarnir fyrir helstu snjalltæki og verslað allt vöruúrval ELKO á elko.is með þeim afhendingarmáta sem hentar best hverju sinni.

Í tilefni opnunarinnar verða sérstök opnunartilboð frá 3.–7. júní með allt að 50% afslætti af völdum vörum. Starfsfólk ELKO hlakkar til að taka á móti gestum og bjóða viðskiptavini Smáralindar velkomna í nýja verslunina.

Klippt á borða við opnun Elko í Smáralind
Starfsfólk Elko klippir á borðann og opnar nýju verslunina
Verslun Elko í Smáralind
Elko er staðsett á 2. hæð Smáralindar