12. mars 2026
Eftirpartí í Garðinum

Í tilefni af tónleikum Laufeyjar í Kórnum verður eftirpartí í Garðinum mathöll laugardagskvöldið 14. mars. Áætlað er að tónleikunum ljúki kl. 22:45 og verða þá sætaferðir aftur í Smáralind. Garðurinn verður því opinn til kl. 01:00 svo gestir geti haldið áfram að njóta kvöldsins.
Heiðar Austmann þeytir skífum og sér um að halda stemningunni uppi.
Veitingastaðir Garðsins munu bjóða upp á eftirfarandi:
- Hjá Höllu: Barinn opinn og bakaður brie ostur.
- Djúsí Sushi: Barinn opinn.
- La Trattoria: Barinn opinn.
- Funky Bhangra: Barinn opinn og smáréttaseðill í boði.
- Sbarro: Margarita og pepperoni sneiðar ásamt brauðstöngum.
- Neó: Opið til miðnættis með mat og drykk.
- Abuela Lola: Opið til miðnættis með drykki og takmarkaðan matseðil.