Dag­ur með Lalla töfra­manni 6. des­em­ber

Lalli Töframaður

Laugardagurinn 6. desember verður sannkallaður töfra- og jóladagur í Smáralind með Lalla töframanni.

Kl. 13:00 – Töfrasýning með Lalla töframanni.

Kl. 14:00 – Jólasveinninn stígur á stokk og syngur uppáhalds jólalögin sín.

Lalli töfrar gesti upp úr skónum og les upp úr nýju bókinni sinni. Að því loknu heilsar Lalli upp á gesti og áritar bókina sína.

Nýja bókin hans Lalla töframanns; Dagur með Lalla – Töfrandi tónleikar verður á tilboði í Pennanum Eymundsson.

Öll eru hjartanlega velkomin. Frábært tækifæri til að hitta Lalla og taka töfra með sér heim.