Bas­alt arki­tektar hanna nýja menn­ing­ar­mið­stöð Kópa­vogs í Smára­l­ind

Ný menningarmiðstöð Kópavogs rís í Smáralind

Heimar, móðurfélag Smáralindar, hafa valið tillögu BASALT arkitekta að uppbyggingu nýrrar menningarmiðstöðvar Kópavogs í Smáralind.

Við mat á tillögunum var lögð áhersla á hugmyndafræði, aðgengi, flæði, sveigjanleika og notagildi. Einnig var horft til hagkvæmni, framkvæmdarhæfni, sjálfbærni og nýtingar á núverandi innviðum, sem og samspils Smáralindar við öflugt menningarstarf Kópavogsbæjar. Niðurstaðan er sú að tillaga BASALT veitir skýran og traustan grundvöll fyrir næstu skref í hönnun og undirbúningi verkefnisins.

Fyrirhuguð menningarmiðstöð verður staðsett í um 900 m² rými í austurhluta Smáralindar og er henni ætlað að verða opið og lifandi rými sem sameinar bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði fyrir fjölbreyttan hóp notenda. Verkefnið er liður í áframhaldandi þróun Smáralindar sem öflugs áfangastaðar fyrir verslun, þjónustu, menningu og afþreyingu. Stefnt er að því að menningarmiðstöðin verði opnuð vorið 2027.

Uppbygging menningarmiðstöðvarinnar  á sér stað á sama tíma og aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega. Á fyrsta ársfjórðungi 2026 jókst heimsóknarfjöldi um 21% samanborið við sama tímabil árið áður, sem gerir tímabilið að aðsóknarmesta fyrsta ársfjórðungi frá upphafi. Aukin aðsókn endurspeglar breiðara og sterkara framboð verslana, þjónustu, veitinga og afþreyingar.

Opnun Garðsins mathallar í lok nóvember 2025 hefur haft sérstaklega jákvæð áhrif á aðsóknina, en frá opnun mathallarinnar hafa um 300.000 manns snætt þar og gestafjöldi aukist jafnt og þétt. Þá hafa endurbætur á Smárabíói, nýir bíósalir, opnun nýrra verslana sem og vel sóttir viðburðir, styrkt heildarupplifun og aukið aðdráttarafl svæðisins.

„Stefna Heima um að byggja upp og efla kjarnasvæði hefur skilað sér skýrt í þróun Smáralindar,“ segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum. „Með markvissum fjárfestingum höfum við þróað Smáralind í lifandi áfangastað þar sem verslun, þjónusta, afþreying og veitingar mynda sterka heild og þjóna gestum og íbúum á nærliggjandi svæðum vel. Með nýrri menningarmiðstöð Kópavogs stígum við næsta skrefið í þeirri vegferð sem mun styrkja enn frekar hlutverk Smáralindar sem miðpunktar mannlífs í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu öllu“.”

Gert er ráð fyrir notalegu barnasvæði í menningarmiðstöðinni
Tillaga að útisvæði við menningarmiðstöðina í Smáralind