2001 snýr aft­ur í Smára­l­ind

Í tilefni af 25 ára afmæli Smáralindar ætlum við að ferðast aftur í tímann, alla leið til ársins 2001 þegar Smáralind opnaði fyrst dyrnar.

Við færum göngugötuna aftur til aldamótanna og rifjum upp tískuna, tónlistina, vörurnar og allt það sem einkenndi þennan eftirminnalega tíma. Fortíðin lifnar við í Smáralind þar sem stemningin frá árinu 2001 fæ að njóta sín á ný.

Tískan frá aldamótunum lifnar við

Tískan um aldamótin var svo sannarlega eftirminnileg og nú fær hún að njóta sín á ný í Smáralind. Í tilefni af 25 ára afmælinu hafa nokkrar af verslunum hússins tekið höndum saman og klætt upp gínur í anda ársins 2001. Alls verða 10 gínur til sýnis á göngugötunni þar sem gestir geta rifjað upp tískustraumana sem einkenndu þennan tíma.

Vörurnar sem vekja minningar

Sumar vörur gleymast seint! Á göngugötunni verður hægt að sjá nostalgískar og ógleymanlegar vörur frá árinu 2001 sem margar hverjar voru ómissandi hluti af hversdagslífinu. Skemmtileg upprifjun á því sem var vinsælt og eftirsótt um aldamótin.

Stígðu inn í árið 2001

Við færum þig aftur til aldamótanna með sérstöku 2001 herbergi þar sem stemningin frá þessum tíma lifnar við. Herbergið er innréttað í anda ársins 2001 og gefst gestum tækifæri til að stíga aftur í tímann, rifja upp gamla daga og smella af skemmtilegum nostalgíumyndum.

Tónlistin sem allir muna eftir

Manstu eftir stærstu smellunum frá árinu 2001? Við ætlum að rifja þá upp og láta tónlistina frá þessum tíma óma um göngugötuna. Undirbúðu þig fyrir alvöru nostalgíu þegar kunnulegir tónar færa okkur aftur til aldamótanna.

Sjáumst árið 2001 í Smáralind!