112 dag­ur­inn í Smára­l­ind

1-1-2 dagurinn

Neyðarlínan heldur upp á 1-1-2 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 1-1-2. Í ár verður dagurinn haldinn í Smáralind þann 11. febrúar kl. 15-18.

Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.
Í ár minnist Neyðarlínan þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996.

Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.

Dagskrá 112 dagsins í Smáralind

Kl. 15-18
Neyðarverðir frá Neyðarlínunni verða á staðnum ásamt fulltrúum frá Rauði krossinum og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Þá verður viðvera á staðnum frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, Samfélagslögreglunni, Lífsbrú og fleirum.

Kl. 16-17
Bjössi brunabangsi kíkir við

Kl. 17-17:30
Ávarp dómsmálaráðherra
Framkvæmdarstjóri Neyðarlínu, Jón Svanberg Hjartarson veitir viðurkenningar
Verðlaun veitt í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna